Nú er í Dritvík daufleg vist,
drungalegt nesið kalda;
sjást ekki lengur seglin hvít
sjóndeildarhringinn tjalda,
Tröllakirkjunnar tíðasöng
tóna þau Hlér og Alda.
Fullsterk mun þungt að færa á stall,
fáir sem honum valda.
(Úr ,,Áföngum" eftir Jón Helgason)