Ferð í Instadal, Fremstadal og upp Hamragilið 18 Júní 2006
Á þessum slóðum er OR búinn að vera að leika sér í vetur og búið að ýta veg uppá fjallið sem skilur á milli Hamragils og Instadals.
Hvort að þeir ætli að bora þarna uppá fjallinu eða að leggja rör þvert yfir, veit ég ekki.
Leiðin í Fremstadal ver merkt með Benz merkingu og svo leiðbeiningum um hvernig stilla skal bílinn.
Þeir eiga sennilega von á útlendingum sem þeir ætla að fara með þessa leið. Skyldi þyrlan taka þá?
Síðan er kominn MJÖG brattur vegur upp með Hamragils skíðabrekkuni. Bara fært fyrir Jarðýtur og KTM.
Hér er ég kominn á enda Orkuveitu vegsins.
Sést aðeins betur
Og aftur til að vera viss
Á toppi Hamragils. Horft í suðvestur
Horft upp á fjallið. Þetta var ónumið land í fyrra. Ekki eitt einasta hjólfar.