![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Frá Wikipedia:
Langisjór er 27 km² stórt stöðuvatn í Vestur-Skaftafellssýslu, suðvestan við Tungnár- og Skaftárjökul. Sunnan við Langasjó er Sveinstindur en austan hans eru Fögrufjöll. Þau ganga víða með þverhníptum klettahöfðum fram í Langasjó. Langisjór er meðal tærustu fjallavatna á Íslandi, en nafn sitt dregur vatnið af lengd sinni, en það er um 20 km langt og 2 km breitt. Hvergi sér að Langasjó fyrr en komið er að honum.
Affall Langasjávar nefnist Útfall og rennur í Skaftá. Vegna þess hve afskekkt vatnið er fannst það ekki fyrr en á 19. öld.
Sturla Ragnarsson