Elsuferðir gengu á jökulinn 31. maí 2008. Þetta var frábær ferð í alla staði. Gist var á Eyri, gamla skólahúsinu á Arnarstapa. Gangan hófst upp úr klukkan átta á laugardagsmorgni. Gott göngufæri upp og gott skygni í um það bill eitt þúsund og eitt hundrað metra. Efst var bara nokkra metra skyggni. Svo bráði af og annar hnjúkurinn sást nokkuð vel en ekki sá eystri. Amtsmanshúsið heimsótt um kvöldið.