Að venju var farin píslaganga á Hestfjall á föstudaginn langa. Veðrið var frábært eins og sést á myndunum. Stoppað var á leiðinni upp nokkrum sinnum og lesið upp úr Passíusálmunum. Nesti snætt á toppnum og var því rennt niður kverkarnar með ýmsum drykkjum. Byrjað var á "vondum" snafs sem ekki þótti neitt tiltakanlega vondur þetta árið. Síðan var farið að gá og kafa ofan í bakpokana og í nokkrum fundust smá fleigar með einhverju görugu í og sem áhugavert var að smakka á.