Jæja ég sé að það hefur einhver verið duglegur að bæta við myndum. Margar flottar þarna hjá þér og auðséð að þú hefur haft þó nokkuð fyrir nokkrum þeirra.
Það sést að maður hefur ekki verið nógu duglegur að fara inn og kíkja. Ég sé að þú hefur bætt Laugaveginum við. Margar skemmtilegar myndir þarna. Greinilega vel þess virði að fara í svona ferð með myndavél.
Sæll nafni.
Það borgar sig oft að fara inn á leitarsíðuna sé ég. Allavega fann ég þessa síðu núna áðan þegar ég var að leita að myndum og ljósmyndurum frá Íslandi og hafði ekki hugmynd um að þú værir kominn með síðu.
Margar góðar myndir hjá þér á síðunni. Til hamingju með síðuna.
Kveðjur, Siggi Geirs