Annað haustið í röð var mætt á Landmannaafrétt til að vera með smalamönnum. Það er ekki hægt að lýsa því hvað þetta er mikil tilbreyting frá amstri daglegs lífs. Komast á fjöll og vera með skemmtilegu fólki, það er toppurinn. Við fengum sól, slyddu, snjókomu, rigningu og rok í bland, þessa viku sem fyrsta leit stóð yfir. Það virðist ekki skipta máli hvernig veðrið er þegar farið er á fjall, alltaf kemur maður heim með bros á vör eftir frábæra viku á fjöllum og endurnærður bæði á sál og líkama.
:: Landmannalaugar - Jökulgil dagur 1 ::
:: Landmannalaugar - Landmannahellir dagur 2 og 3 ::