Bled vatn er frægasti ferðamannastaður Sloveniu. Var byrjað að ganga niður Soteska Vintgar, sem er mjög fallegt gil um 4 km frá vatninu. Þaðan var gengið til Bled með viðkomu hjá 15. aldar kirkju, St Catherina. Þegar til Bled kom var tekinn bátur til að flytja hópinn út í eyjuna í vatninu, en þar er gömul kirkja og á ströndinni andspænis glittir í sumarhús Titos. Á hægri hönd uppi á háum kletti gnæfir Bled kastali