Farin var ferð á Vatnajökul dagana 20. - 24. apríl á þremur jeppum. Keyrt var upp á jökul frá Jökulheimum og farið í Kverkfjöll með viðkomu á Grímsfjalli. Gist var tvær nætur í Kverkfjöllum. Á laugardeginum var farið í Hveragil og gist í Snæfelli. Á sunnudeginum var keyrt suður yfir jökul og niður Skálafellsjökul og þaðan í bæinn.