Þegar þessi ferð var farinn var komið framm yfir miðjan águst.
Brunuðum norður á Bakkaflöt á föstudagskveldi vegna þess að undirritaður var haldinn þráhyggju um að fara í Laugafell Þetta var jómfrúarferð "cruisa".
Allt gott og blessað snemma á Laugardagsmorgni héldum við af stað inn vesturdal og uppúr skagafirði í geysilega fallegu veðri, en þegar að hnjúkahvísl (sjá mynd af miðanum i Laugafelli)var komið blasti við okkur eitthvað annað en á sem vera átti fær öllum bílum.
Útlendingar á hinum bakkanum biðu spentir eftir því hvað við ætluðum að gera.
En eins og áður sagði var ég haldinn þráhyggju um Laugafell svo við létum vaða uppá móti straumi og bíllinn öslaði í ca 80 cm djúpu vatni og við í nettu sjokki.
En allt fór nú vel og við náðum baði Lauginni , en ákváðum eftir lestur miðans að taka frekar Eyjafjarðarleiðina til baka, sáum svo sem ekki eftir því .