Við fórum með rútu frá skrifstofu FÍ um morguninn og byrjuðum gönguna um hádegisbilið. Fengið var leyfi í Hlíð (Hallkelsstaðahlíð) til að fara á bílnum inn fyrir vatnið. Það sparaði okkur líka að vaða ána, sem rennur í vatnið. Byrjað var að ganga eftir gömlum vegarslóða upp fyrir Sandfell, en þar var snúið til vinstri og gengið upp Hellisdal. Þegar komið var upp í skarðið voru pokarnir skyldir eftir og gengið upp á Rögnamúla og fram á brúnina fyrir ofan Djúpadal.
Síðan var gengið niður í Klifsdal og niður Klifsgil í Hítardalinn. Farið er yfir Hítará á stíflu við útfallið úr vatninu.