Bled vatn er frægasti ferðamannastaður Sloveniu. Við byrjuðum að ganga niður Soteska Vintgar, sem er mjög fallegt gil um 4 km frá vatninu. Þaðan gengum við til Bled með viðkomu hjá 15. aldar kirkju, St Catherina. Þegar til Bled kom fengum við bát til að flytja okkur út í eyjuna í vatninu, en þar er gömul kirkja og á ströndinni andspænis glittir í sumarhús Titos. Á hægri hönd uppi á háum kletti gnæfir Bled kastali