Þetta eru myndir úr fyrstu ferðinni á Unimog eftir að hafa gert hann upp (rúmlega 2ja ára aðgerð)sjá hér. Ég fór austur fyrir Mýrdalsjökul og þar upp á Fjallabaksleið þar sem ég gisti (var einn á ferð). Kom síðan niður Fljótshlíðina. Ferðin gekk vel, þó bilaði alternatorinn (kolin). Það skipti þó litlu máli þar sem nýja dísel vélin þarf ekki rafmagn til að haldast í gangi.