Klettafrú (Saxifraga cotyledon) er einna stærst af steinbrjótunum. Hún vex oftast utan í hamraveggjum, einkum þeim sem visa mót sól.
Klettafrú hefur mjög reglulega stofnhvirfingu af breiðum laufblöðum, og stóra, fjölblóma blómskipun.
Hún vex aðeins á Austurfjörðum og Suðausturlandi, og er nokkuð víða á því svæði, allt frá Loðmundarfirði suður í Hemru í Skaftártungu. (floraislands.is).