photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Torarinn Olafsson (Toti) | all galleries >> Torarinn Olafsson's Galleries >> Íslenskar kirkjur : Icelandic churches > Knappstaðakirkja
previous | next
25-JUN-2016 Tóti

Knappstaðakirkja

Úr Wikipedia.
Knappsstaðir eru eyðibýli, kirkjustaður og áður prestssetur í Stíflu í Fljótum í Skagafirði, landnámsjörð Þórðar knapps og Æsu Ljótólfsdóttur frá Hofi í Svarfaðardal. Bærinn fór í eyði árið 1974. Hann stendur undir fjalli sem heitir Breiðarkollur og er 932 m á hæð.

Kirkja hefur verið á Knappsstöðum frá því mjög snemma á öldum og þar sátu prestar sóknarinnar. Knappsstaðabrauð þótti þó alltaf með rýrari brauðum, enda er Stífla snjóþung og þótti harðbýl þótt sumarfagurt hafi verið þar áður en Skeiðsfossvirkjun sökkti stórum hluta sveitarinnar undir vatn.

Þann 12. júní 1838 stórskemmdist Knappsstaðakirkja í jarðskjálfta. Ákveðið var að reisa nýja kirkju. Var hún vígð 1840 og er elsta timburkirkja landsins og ein hinna minnstu. Kirkjubyggingin var meðal annars fjármögnuð með því að selja Guðbrandsbiblíu, sem kirkjan átti, og barst hún til útlanda en var síðan gefin aftur til Íslands 1933 og er nú í Landsbókasafni.

Knappsstaðabrauð var lagt niður 1881 og kirkjan lögð undir Barð. Eftir að Stífla fór í eyði að mestu voru sóknirnar sameinaðar og eru síðan tvær kirkjur í Barðssókn. Messað er í kirkjunni einu sinni á ári og eru þær messur jafnan fjölsóttar.

Sony ILCE-6000
1/100s f/6.3 at 50.0mm iso125 full exif

other sizes: small medium original auto
comment | share