photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Sandfell - Sveinstindur - Hvannadalshnúkur - Sandfell - 29. apríl 2012 tree view | thumbnails | slideshow

Sandfell - Sveinstindur - Hvannadalshnúkur - Sandfell - 29. apríl 2012

Vöknuðum 1.30 aðfararnótt 29.4. og lögðum af stað í göngu frá Sanfdelli kl. 3 áleiðis upp Kotárjökul. Kalt var í byrjun enda sólin ekki risin og var því mikilvægt að stoppa ekki lengi í pásum. Vorum komin um 7 leytið uppá sléttu skammt vestan Rótarfjallshnúks, þar sem sólin skein. Hófst þá löng ganga í erfiðu færi vegna snjódýptar yfir sléttuna áleiðis til Sveinstinds með viðkomu á Sveinsgnípu. Snjóskelin hélt ekki, sukkum 20-30 cm í nær hverju skrefi. Vorum rúmar 2 klst. á leiðinni. Í matarhléi þar gerðust næstum því alvarlegt slys er sprunga opnaðist og maður féll niður að öxlum en gat heldið sér á höndum og með því að spyrna þar sem hægt var. Fyrir snarræði tókst að ná tökum á honum áður en snjóskelin brást endanlega og vippa upp aftur. Fyrir neðan var breitt svart hyldýpi, amk 25 m. Áfram var haldið og nú yfir og með endilöngum eggmjóum Sveinstindi, sem er ekki fyrir lofthrædda. Við tók 2 klst. ganga í blindu og ísingu í átt til Hvannadalshnúks, gengið var meðfram Snæbreiði. Broddar settir á og þegar komið var upp birti til og við sáum til allra átta. Vorum þar um kl. 17.30. Þá var gengið niður og haldið til baka niður Sandfellsleiðina. Komum í hús aftur um kl. 23.
previous pagepages 1 2 ALL next page
Hrafnhildur gerir sig klára skömmu fyrir kl. 3
Hrafnhildur gerir sig klára skömmu fyrir kl. 3
Akureyringarnir
Akureyringarnir
Komin af stað
Komin af stað
Fyrsta pása við lækinn í Sandfelli
Fyrsta pása við lækinn í Sandfelli
I. Bruun mundar vopnið
I. Bruun mundar vopnið
Dagsskíman
Dagsskíman
Kominn með spottann
Kominn með spottann
Vilhjálmur Árna í Sónar
Vilhjálmur Árna í Sónar
Dagurinn handan við hæðina
Dagurinn handan við hæðina
Í 1580 m hæð. Línan gerð klár
Í 1580 m hæð. Línan gerð klár
Kolla í flottu umhverfi
Kolla í flottu umhverfi
Dyrhamar og Hnúkurinn komnir í ljós
Dyrhamar og Hnúkurinn komnir í ljós
Jón Árni. Fjær er Hans að fylgjast með sinni línu
Jón Árni. Fjær er Hans að fylgjast með sinni línu
I Brunn með samlokuna sína
I Brunn með samlokuna sína
Sveinsgnípur lengst t.h., Sveinstindur og Snæbreið lengst t.v.
Sveinsgnípur lengst t.h., Sveinstindur og Snæbreið lengst t.v.
Dyrhamar t.v. og Hnúkurinn í öllu sínu veldi
Dyrhamar t.v. og Hnúkurinn í öllu sínu veldi
Hrikalegar sprungur undir Hnúknum
Hrikalegar sprungur undir Hnúknum
Sprungur undir Hnúknum
Sprungur undir Hnúknum
Pása. Jón Gauti og Bolli
Pása. Jón Gauti og Bolli
Bolli í frábæru veðri
Bolli í frábæru veðri
Olli Króksari, leiðsögumaður okkar, og Ingólfur Bruun
Olli Króksari, leiðsögumaður okkar, og Ingólfur Bruun
Á leið á Sveinstind
Á leið á Sveinstind
Það sem átti að vera þægileg ganga reyndist allt annað. Mjög erfitt færi
Það sem átti að vera þægileg ganga reyndist allt annað. Mjög erfitt færi
Kolla og Björg í djúpum sporum
Kolla og Björg í djúpum sporum
Fyrir framan Viðar (lengst t.v.) reyndist manndrápssprunga
Fyrir framan Viðar (lengst t.v.) reyndist manndrápssprunga
Hrafnhildur fyrir framan sprunguna sem opnaðist undir Viðari
Hrafnhildur fyrir framan sprunguna sem opnaðist undir Viðari
Gímald, amk. 20 m niður
Gímald, amk. 20 m niður
previous pagepages 1 2 ALL next page