photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Vesturland - Sumarferð 2003 tree view | thumbnails | slideshow

Vesturland - Sumarferð 2003

Eins og undanfarin sumur lagði ferðahópurinn land undir fót og nú var haldið á Vesturland, nánar tiltekið í Dali og Snæfellsnes. Lagt var af stað föstudaginn 27. júní og komið heim aftur sunnudaginn 6. júlí. Gist var að Stóra Vatnshorni í Dölum, Snjófelli við Arnarstapa og Gíslabæ (Grímsbæ eða Grimsby eftir atvikum!) á Hellnum. Veður var með afbrigðum hlýtt en þó viðraði aldrei til ferðar á Snæfellsjökul sökum þoku. Við létum það þó ekki á okkur fá heldur nutum stórbrotinnar náttúru og gestrisni heimamanna hvar sem komið var. Einkum viljum við þakka forsvarsmönnum Mjólkursamlagsins í Búðardal höfðinglegar móttökur. Myndir eru teknar af Bolla Valgarðssyni og Halldóri Jónssyni. Um einstaka staði sem komið var við á má fræðast nánar með því að smella á tengla, sem víða eru í einstökum myndatextum. Einnig má lesa nánar um svæðið í verkefni nokkurra nemenda Fjölbrautaskóla Vesturlands HÉR.

Nú þegar er farið að spá og spekúlera í viðfangsefni næsta sumars. Norðurland er eftir, allt austur á Langanes. Einnig er Suðurland eftir austur til Smyrlabjarga og svo náttúrlega er Reykjanesskaginn ófarinn af flestum. Færi maður þangað gæti maður gist heima hjá sér! Reyndar hefur verið minnst á önnur lönd, t.d. Norrænuferð til Hanstholm, bíltúr til Finnlands og siglingu heim frá Bergen. Það gæti orðið spélegt ferðalag - en verður, hygg ég, snúið að sannfæra allan hópinn. En vissulega er hugmyndin freistandi!

This gallery shows our trip to the west area of Iceland, Dalasysla og Snæfellsnes.
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Kvöldið fyrir brottför úr Dölum
Kvöldið fyrir brottför úr Dölum
Undirbúningur stendur sem hæst
Undirbúningur stendur sem hæst
Snætt úti við
Snætt úti við
Langt fram á kvöld
Langt fram á kvöld
Síðan var farið í leiki
Síðan var farið í leiki
Teygjuæfingar
Teygjuæfingar
og fleira
og fleira
Á Skógarströnd á leið til Stykkishólms
Á Skógarströnd á leið til Stykkishólms
Sigurlaug
Sigurlaug
Á leið til Stykkishólms
Á leið til Stykkishólms
Álftafjörður ber nafn með rentu!
Álftafjörður ber nafn með rentu!
Lagt af stað í siglingu
Lagt af stað í siglingu
Um borð í Særúnu
Um borð í Særúnu
Bergmyndanir
Bergmyndanir
Plægt eftir sjávarfangi
Plægt eftir sjávarfangi
Pokinn hífður um borð
Pokinn hífður um borð
Allir voru mjög forvitnir
Allir voru mjög forvitnir
Sigurlaug með ígulker
Sigurlaug með ígulker
Í Eiríkslagi undir Dímonklökkum
Í Eiríkslagi undir Dímonklökkum
Snætt að lokinni siglingu
Snætt að lokinni siglingu
Grundarfjörður
Grundarfjörður
Bárarfoss utan við Grundarfjörð
Bárarfoss utan við Grundarfjörð
Dorgað á höfninni
Dorgað á höfninni
Dauður selur
Dauður selur
Uppstilling
Uppstilling
Komið úr róðri
Komið úr róðri
Þvegið í Ólafsvík
Þvegið í Ólafsvík
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page