photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgaršsson | profile | all galleries >> Galleries >> Langavatnsmúli - Sópandaskarð - Laugardalur - Hörðudalur tree view | thumbnails | slideshow

Langavatnsmúli - Sópandaskarð - Laugardalur - Hörðudalur

Laugardaginn 23. september 2006 héldum við rótarý Borgarar í okkar árlegu haustferð, að þessu sinni vestur í Dali um Sópandaskarð í blíðskaparveðri. Í för voru um 25 manns á 9 bílum, allt óbreyttum jeppum utan eins sem var á 38". Þessi leið er fær öllum jeppum, aka þarf með verúð og þolinmæði og ef vel tekst til þarf enginn að skemma neitt. Þetta er ekki leið fyrir jepplinga. Í okkar tilviki reyndi nokkuð á þolinmæði, sumum fannst leiðin alls endis ófær óbreyttum jeppum, einn beygði of snemma í beygju af því að hann var með mestu jólasveinana í klúbbnum um borð. Ferðin var ánægjuleg og áfallalaus í alla staði og tók um 9 klst. Þessar ferðir okkar eru okkur öllum í klúbbnum mikils virði því þær hrista hópinn þétt saman og nú er bara að hugsa fyrir næstu haustferð. Og gaman væri nú ef eldri kynslóðin í klúbbnum færi nú a láta sjá sig! Eftir að áð hafði verið við rústir Laugarár í Laugardal ofan Hörðudals kvaddist hópurinn formlega enda sumir á leið vestur eða norður í bústað en þeir sem suður fóru héldu um Heydali, sem er mun fallegri en Bröttubrekkuleiðin, sem þó er fljótfarnari enda malbikuð alla leið.
previous pagepages 1 2 3 ALL next page
g5/12/32712/2/67527550.MfuXrKIN.jpg g5/12/32712/2/67527551.1WAEycK4.jpg g5/12/32712/2/67527553.YseF9hFw.jpg
g5/12/32712/2/67527557.OONmObvo.jpg Allt ķ kleinu!
Allt ķ kleinu!
g5/12/32712/2/67527568.NASPzwiZ.jpg
previous pagepages 1 2 3 ALL next page