photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Óvissuferðin 2012 tree view | thumbnails | slideshow

Óvissuferðin 2012

Árlega förum við Hrafnhildur, Einar og Halla og Örn og Begga í óvissuferð. Fyrsta ferðin var farin 2007, þá fóru konurnar með okkur í algera óvissu og ári síðar tókum við strákarnir við. Ferðin í ár var á okkar vegum. Við byrjuðum í morgunkaffi kl. 8 hjá Erni og Beggu föstudaginn 20. janúar. Við ókum til Grindavíkur, þar sem Þorsteinn Gunnarsson, upplýsingafulltrúi bæjarins, ætlaði að sýna okkur Saltfisksetrið, en gat það svo ekki þegar á reyndi. Við héldum för okkar áfram í blindhríð, svo ekki sá á milli vegstika, um Suðurstrandarveg til Herdísarvíkur og áfram til Þorlákshafnar, þar sem Viggó Dýrfjörð og kona hans, Barbara Guðnadóttir menningarfulltrúi, tóku á mótti okkur í Ráðhúskaffi. Þaðan héldum við til listakonunnar Dagnýjar Magnúsdóttur í Höndum í höfn sem kenndi okkur fyrstu skrefin í glerlist. Eftir listsköpum héldum við til Eyrarbakka og skoðuðum Húsið, elstu timburbyggingu landsins. Að því loknu heimsóttum við Björgvin orgelsmið á Eyrarbakka og Elfar listmálara. Um kvöldmatarleytið héldum við til Dalbæjar III í Hrunamannahreppi, þar sem við gistum í tvær nætur. Laugardaginn 21. skoðuðum við Eldgosasafnið á Geysi, litum við hjá Gullfossi og fengum okkur kjötsúpu á veitingastaðnum þar. Að því loknu heimsóttum við Sigrúnu og Sigurjón, mjólkurbændur í Kotlaugum, sem sýndu okkur fjósið eftir að hafa hellt flösku af Konna ofan í gestina! Það fór ekki á milli mála að samferðarmönnum mínum þótti heimsókn til þeirra hjóna það sem uppúr stóð í ferðinni. Síðan var haldið heim til Dalbæjar á ný, þar sem Örn hóf matarundirbúning meðan við Immer fórum til Selfoss að sækja meiri bjór, enda 70 dollur hvergi nærri nóg. Að nautasteik og kvöldgöngu lokinni var lagst í pottinn undir stjörnubjörtum himni og síðan lagst til náða. Á sunnudegi var haldið til Þorlákshafnar á ný til að ná í glerlistina áður en ekið var heim á ný. Toppiði þetta stelpur!
previous pagepages 1 2 3 4 ALL next page
Fyrri kynslóðir
Fyrri kynslóðir
Brattur stigi
Brattur stigi
Linda Ásdísardóttir safnvörður tók á móti okkur
Linda Ásdísardóttir safnvörður tók á móti okkur
Í verslun Guðlaugs Pálssonar
Í verslun Guðlaugs Pálssonar
Mannshár. Myndi vilja eiga svona húfu.
Mannshár. Myndi vilja eiga svona húfu.
Við kajann á Stokkseyri
Við kajann á Stokkseyri
Björgin orgelsmiður tók á móti okkur. 1 & 1/2 klst. leið eins og 10 mín.
Björgin orgelsmiður tók á móti okkur. 1 & 1/2 klst. leið eins og 10 mín.
Það er mikið nákvæmnisverk að smíða orgel
Það er mikið nákvæmnisverk að smíða orgel
Björgvin leikur á orgel frá Austurríki sem Mozart hefði aldurs vegna getað hafa spilað á
Björgvin leikur á orgel frá Austurríki sem Mozart hefði aldurs vegna getað hafa spilað á
Snillingur
Snillingur
Segir allt sem segja þar
Segir allt sem segja þar
Annar snillingur
Annar snillingur
Skemmtilegt listaverk Elfars Guðna Þórðarsonar í vinnustofu hans á Stokkseyri
Skemmtilegt listaverk Elfars Guðna Þórðarsonar í vinnustofu hans á Stokkseyri
Elfar Guðni Þórðarson listamaður af guðs náð
Elfar Guðni Þórðarson listamaður af guðs náð
Tími kominn á kaffi
Tími kominn á kaffi
Brennið þið vitar á Stokkseyri
Brennið þið vitar á Stokkseyri
Þykk muggan fylgdi okkur frá morgni til kvölds
Þykk muggan fylgdi okkur frá morgni til kvölds
Komin í Dalbæ í Hrunamannahreppi
Komin í Dalbæ í Hrunamannahreppi
Einar lætur bílstjórann loksins hafa 1. bjórinn e. 12 klst ferðalag
Einar lætur bílstjórann loksins hafa 1. bjórinn e. 12 klst ferðalag
Örn undirbýr matseldina
Örn undirbýr matseldina
Begga spjallar við börnin
Begga spjallar við börnin
Immerinn sá um forréttinn!
Immerinn sá um forréttinn!
Ekki amalegt
Ekki amalegt
Aldrei smakkað grænmeti áður! :)
Aldrei smakkað grænmeti áður! :)
Hammi nammi
Hammi nammi
Og lífið er ljúft
Og lífið er ljúft
Bóndadagsgjöf eiginkvennanna.
Bóndadagsgjöf eiginkvennanna.
previous pagepages 1 2 3 4 ALL next page