Við hjónin ásamt P. Lúkasi Pálssyni fengum okkur bíltúr með veginum f. norðan Mosfell, með Sveinamýri og Þverárkotshálsi eftir leið sem liggur síðan um Svínaskarð til Kjósar. Við lögðum bílnum undan Bæjarfelli og gengum hefðbundna gönguleið upp á hnúkana. Leiðin er mjög á fótinn alla leið upp og því tilvalin til æfinga. Vorum 75 mínútur upp með tveimur stuttum pásum og fjörutíu mínútur niður. Það var svo heitt að maður var að kafna. Fimmtán stiga hiti í október! Hvaða rugl er þetta?
Móskarðshnúkar
Kaldakvísl
Þá var að leggja af stað fótgangandi
Hrafnhildur í fantastuði
Það er á brattann að sækja
Áfram haldið
Skálafell
Í skarðinu
Eyjadalur. Kjósin í fjarska
Á toppnum
Hrafnhildur í 800 m hæð. Skálafell til hægri. Svínaskarð á milli