Morgunfuglar á reiðhjólum fóru á fjöll í byrjun september. Hjólatúrinn hófst um kl. 15 við upphaf Öldufellsleiðar við Hrífunesveg þaðan sem hjólað var í Hvanngil. Daginn eftir var hjólað áfram til Fljótshlíðar, að Stóra Dímóni, yfir gömlu Markarfljótsbrúna og ferðinni lokið á bílastæðinu við þjóðveg 1. Níu manns í heild, fimm hjólarar fyrri daginn og sex þann seinni auk þriggja trússara. Fyrri dagurinn, laugardagurinn 8. september, var krefjandi: Mikil rigning og á kafla niðdimm þoka. Mikið í ánum, sérstaklega flæðum Markjökuls í Mýrdalsjökli. Sunnudagurinn var hrein andstæða: sól með andvara allt til ferðaloka.