Skruppum nokkrir félagar í æfingaferð til Kerlingafjalla laugardagsmorgunn einn í byrjun febrúar 2005. Komum inneftir um kl. 15 en töfðumt í tvær klst. við ána sökum klaka. Átum þorramat, sváfum og héldum til baka uppúr kl. 9 morguninn eftir. Það var nú allt og sumt - enda æfingaferð! Af sögu- og sagnfræðilegum ástæðum skal því haldið til haga hér að Hilux var sá eini sem ekki fór á kviðinn og bað um drátt í þessari ferð. Var þó allan tímann í 17 pundum. Sumum kann að finnast sem óþarfi sé að skrásetja svona. Öðrum þykir kannski þvert á móti að full ástæða sé til þess því slíkt komi varla fyrir aftur. Enn aðrir munu án efa fullyrða að þetta sé lýgi því engar heimildir séu til um að Hilux hafi verið sá eini - hver veit?! :) Djöfullegast af öllu er þó að enginn hafði vit á að taka mynd af ferðafélaga mínum og vini, Ingólfi Bruun, ekki einu sinni hann sjálfur!