Ástand gamla frystihússins í Flatey hefur verið
þyrnir í augum eyjaskeggja um langa hríð enda
húsið það fyrsta sem blasir við gestum eyjarinnar.
Eigendur hússins hafa nú ákveðið að gera það upp og
hyggjast nota til verksins styrk sem þeim
var ætlaður til niðurrifs.