photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Vatnajökull - hvítasunna 2020 tree view | thumbnails | slideshow | map

Vatnajökull - hvítasunna 2020

Héldum á Vatnajökul hvítasunnuhelgina 31. maí - 1. júní. Vorum tólf manns á sex bílum; Bolli og Jón Svanþórsson, Ríkharður Pétursson og Snorri Tómasson, Íris Þórðardóttir og Valur Örn Gíslason, Guðjón Stefánsson og Steinunn Hrefna Magnússodóttir, Veigar Hreggviðsson, og Eiður Smári Valsson og Smári Sigurgrímsson. Héldum í grenjandi rigningu á Skálafellsjökul eftir næturgistingu í Smyrlabjörgum þaðan sem stefna var tekin til Hveradala. Þoka og úði voru á jökli allt þar til komið var norður. Í Hveradölum hafði of mikinn snjó leyst og var ófært í námunda við ána. Um kaffileytið var haldið til Geldingafells í skála Ferðafélags Austurlands. Leiðin liggur um vestanverðan Blöndujökul og var meiningin að þvera Blöndu á snjóbrú við skálann. Í ljós kom að áin hafði rutt sig upp á harðan snjóinn og ruddist þar með látum ofan í gilið neðan skálans. Héldum því upp á jökul aftur og komum að skála að austanverðu. Morguninn eftir héldum við yfir ána við skálann, enda allt fallið í ljúfa löð, og uppá jökul aftur með stefnu til Kverkfjalla. Þaðan héldum við heim á leið aftur um Skálafellsjökul enda jökullinn ófær við Jökulheima, þangað sem ætlunin hafði verið að fara á leið heim.
previous pagepages 1 2 3 ALL next page
Eiður Smári og foreldrarnir, Valur og Íris
Eiður Smári og foreldrarnir, Valur og Íris
Kverkfjöll. Skálinn Jörfi á hól t.h.
Kverkfjöll. Skálinn Jörfi á hól t.h.
Rikki fann sprungu
Rikki fann sprungu
Í Kverkfjöllum
Í Kverkfjöllum
Fyrir ofan glittir í Jörfa
Fyrir ofan glittir í Jörfa
Við affallið í Kverkfjöllum
Við affallið í Kverkfjöllum
Rikki í Kverkfjöllum
Rikki í Kverkfjöllum
Haldið af stað aftur heim
Haldið af stað aftur heim
Á leið til Skálafellsjökuls
Á leið til Skálafellsjökuls
Áning í blíðu á jökli
Áning í blíðu á jökli
Valur og Hrefna buðu til veislu
Valur og Hrefna buðu til veislu
Áning
Áning
IMG_0985F.JPG
IMG_0985F.JPG
IMG_0986.JPG
IMG_0986.JPG
Skálafelljökull - Hveradalir - Geldingafell - Kverkfjöll - Skálafellsjökull
Skálafelljökull - Hveradalir - Geldingafell - Kverkfjöll - Skálafellsjökull
previous pagepages 1 2 3 ALL next page