photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Hveravellir - Setur - Sóleyjarhöfði 2004 tree view | thumbnails | slideshow

Hveravellir - Setur - Sóleyjarhöfði 2004

Hér er ferð okkar félaganna dagana 30. janúar til 1. febrúar 2004 um Langjökul til Hveravalla, þaðan sem haldið var um Kerlingafjöll til Seturs og áfram um Sóleyjarhöfða til Hrauneyja og heim. Á föstudagsmorgni lögðu af stað Skúli og Haukur, Rikkarnir tveir, Bessi og Jón á móti, Siggi Rögg og Steini auk Halldórs. Þeir fóru í Þjófakrók ofan Húsafells og þaðan áfram til Hveravalla. Um kvöldið birtust Bolli og Raggi auk Heimis Gunnarssonar. Á laugardagsmorgni vöknuðum við seint, um kl. 9.30, í hlýjum kofanum en úti var 22 stiga frost og heiðskýrt. Það voru skringileg hljóð sem heyrðust í bílvélunum við ræsingu þótt allir flygju þeir í gang. Frá Hveravöllum héldum við til Kerlingafjalla og áfram í næsta náttstað, Setur. Þangað komum við um kaffi. Morguninn eftir héldum við áfram í brakandi gaddi og leiðinda sykurfæri um Sóleyjarhöfða áleiðis til Hrauneyja. Þetta var prýðileg ferð í góðra vina hópi, snjór yfir öllu, misjafnt færi, víða steinar undir en þó ekki alvarlegt vandamál.

Fallegustu myndirnar eru að sjálfsögðu teknar af Ragnari Th. hjá Arctic Images; þær eru auðþekktar! Hinar eru teknar af Bolla, Halldóri og Hauki.
previous pagepages 1 2 3 ALL next page
Hágöngurnar tvær
Hágöngurnar tvær
Í Setri
Í Setri
Skúli kominn á hliðina!
Skúli kominn á hliðina!
Borðhald
Borðhald
Beðið eftir ketinu!
Beðið eftir ketinu!
Veislan hafin
Veislan hafin
Loðmundur séður frá Setri á sunnudagsmorgni
Loðmundur séður frá Setri á sunnudagsmorgni
Bessi og Skúli bæta við lofti
Bessi og Skúli bæta við lofti
Sunnudagsmorgunn 1. febrúar
Sunnudagsmorgunn 1. febrúar
Lítill og smár
Lítill og smár
Á leið heim
Á leið heim
Sólin hátt á himni skín
Sólin hátt á himni skín
Haukur og Jón
Haukur og Jón
Sunnan Múlakvíslar
Sunnan Múlakvíslar
Búin með staurinn!
Búin með staurinn!
Á Sóleyjarhöfðanum sjálfum
Á Sóleyjarhöfðanum sjálfum
Á melunum skammt frá Sóleyjarhöfða
Á melunum skammt frá Sóleyjarhöfða
Kvíslarvatnsvegur
Kvíslarvatnsvegur
previous pagepages 1 2 3 ALL next page