photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Hornstrandir 2007: Látravík – Hornvík – Bolungarvík – Reykjarfjörður – Drangar tree view | thumbnails | slideshow

Hornstrandir 2007: Látravík – Hornvík – Bolungarvík – Reykjarfjörður – Drangar

Um miðjan júlí 2007 hélt vinahópurinn í BÍP á ný vestur á Strandir – í fimmta sinn - og nú var fullskipað. Að venju var ekið rakleiðis í Norðurfjörð þar sem gist var í góðu yfirlæti. Morguninn eftir, sunnudaginn 15. júlí var haldið af stað með þeim heiðursmönnum og fóstbræðrum, Reimari og Sigga Steina á Sædísi norður í Látravík, þar sem dvalið var í Hornsbjargsvita í tvær nætur hjá Unu og Ævari. Lendingin gekk vel enda Siggi Steini annálaður meistari í meðförum við bátinn, en þó tókst Skúla og Svenna að leggjast kylliflatir í sjávarrótið í fjörunni. Afleiðingin varð m.a. sú að kvikmyndatökuvélin hans Skúla sofnaði svefninum langa.

Daginn eftir, 16. júlí, var skipt liði, við feðgar, ég og Egill Logi, gengum ásamt feðgum, Svenna og Einari Sveini, yfir Kýrskarð til Hornvíkur en aðrir í hópnum til sama áfangastaðar um Almenningaskarð með viðkomu á Kálfatindum. Við Egill höfðum með okkur veiðistöng, hugðumst veiða í soðið í ósnum en misstum af flóðinu og veiddum ekki bröndu. Ekki bætti úr skák að Egill Logi horfði stöðugt til fjalla í leit að móður sinni og varð því fremur dapur er við urðum úrkula vonar um að hún léti sjá sig þar neðra. Á leið til baka kættist hann þó allnokkuð í blómabreiðum, þar sem hann týndi fallega vendi til að gefa móður sinni.

Á þriðja degi, 17. júlí, var haldið áleiðis til baka með Reimari og Sigga Steina, nú til Bolungarvíkur á Ströndum, þar sem ráða ríkjum Sigfríður og Vilmundur, sonarsonur hennar, sonur Reimars á Sædísi. Ekki slóust þó allir í hópnum með í för sjóleiðina því einhverra hluta vegna sá Bessi sig tilneyddan til að ganga leiðina aftur, en hann fór hana einnig í fyrra. Ekki var á annað hættandi en að Hrafnhildur fylgdi drengnum. Þau gengu efri leiðina svokölluðu, það er gengu ekki ofan í firði og víkur heldur héldu sig alla leiðina í “hæð” og því inn firði og víkur. Því lengist gatan sem því nam. Í Bolungarvík gistum við eina nótt áður en haldið var af stað aftur.

Á fjórða degi, 18. júlí, gengum við til Reykjarfjarðar, um Furufjörð og Þaralátursfjörð, og það var mjög sérstakt að ekki heyrðist í mófugli fyrr en komið var í Þaralátursfjörð enda refurinn alls ráðandi um flesta firði. Annars var bara þögn og auk þess ekkert sem benti til vegsummerki manna. Það er auðvelt að ímynda sér að maður sé á ferð í kringum árið 1000, þarna sem víða annars staðar á Ströndum. Sérstök tilfinning.

Á fimmta degi héldum við Egill Logi, Svenni, Svanhildur og Einar Sveinn til Norðurfjarðar á ný en aðrir í hópnum gengu að Dröngum. Úrhellisrigning var í Reykjarfirði um morguninn og runnu satt að segja tvær grímur á suma hvort leggja ætti af stað. Síðan stytti upp og hópurinn þusti af stað. Þurrt var að mestu yfir daginn en svo fór að rigna allhressilega og er komið var að Dröngum var ekki þurr þráður í flíkunum. Að Dröngum gisti hópurinn ýmist í tjöldum eða í hálfköruðum kofa við tjaldstæðið.

Er við, sem fórum til Norðurfjarðar, komum þangað fóru Svenni og Svanhildur til Reykjavíkur en við Egill Logi fórum rakleitt í sund, þar sem við svömluðum góða stund og grilluðum svo í rólegheitum um kvöldið.

Sólin vakti göngugarpa að Dröngum morguninn eftir og höfðu allir nóg að gera við að viðra föt og viðlegubúnað áður en gengið var af stað síðasta áfangann til Ófeigsfjarðar. Að lokinni sundferð fórum við Egill Logi að tygja okkur af stað til Ingólfsfjarðar og áfram til Ófeigsfjarðar, dunduðum okkur við að “veiða” í köldustu og vatnsmestu bergvatnsá landsins, Hvalá, meðan við biðum eftir göngugörpunum. Ánægjan í augum Egils Loga er ólýsanleg er hann kom auga á móður sína í kíkinum í fjarska enda rauk hann þegar af stað og var óðar horfinn. Við, ég og kíkirinn, urðum eftir og biðum þolinmóðir. Í Ófeigsfirði lauk göngunni miklu. Slegið var upp heljarinnar pylsuveislu í Norðurfirði um kvöldið áður en haldið var af stað á ný til borgarinnar. Hákon Örn Halldósson, vélstjóri hjá Landhelgisgæslunni, hefur verið mér mjög hjálplegur varðandi rétt örnefni og kann ég honum bestu þakkir fyrir.
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Á leið vestur
Á leið vestur
Í Djúpavík var tímabært að hleypa úr
Í Djúpavík var tímabært að hleypa úr
Í Krossneslaug
Í Krossneslaug
Inger, Sibba, Sigurlaug, Jón og Bessi
Inger, Sibba, Sigurlaug, Jón og Bessi
Beðið eftir brottför frá Norðurfirði
Beðið eftir brottför frá Norðurfirði
Egill Logi varð þræl sjóveikur!
Egill Logi varð þræl sjóveikur!
Svenni og Einar Sveinn
Svenni og Einar Sveinn
Bræðurnir Jón Páll og Davíð Guðni
Bræðurnir Jón Páll og Davíð Guðni
Drangaskörð sunnan megin
Drangaskörð sunnan megin
Drangaskörð norðan megin
Drangaskörð norðan megin
Reykjarfjörður. Hrolleifsborg í Drangajökli í fjarska
Reykjarfjörður. Hrolleifsborg í Drangajökli í fjarska
Bolli og Egill Logi
Bolli og Egill Logi
Undir Hornbjargi
Undir Hornbjargi
Sigurlaug og Skúli
Sigurlaug og Skúli
Sibba fylgist með fuglalífinu undir Súlnastapa undan Hvanndal, sem er inn af Hælavíkurbjargi
Sibba fylgist með fuglalífinu undir Súlnastapa undan Hvanndal, sem er inn af Hælavíkurbjargi
Ha ha ha ha ha ha...
Ha ha ha ha ha ha...
Svanhildur, Nonni, Svenni, María og Inger
Svanhildur, Nonni, Svenni, María og Inger
Hornbjargsviti við Látravík
Hornbjargsviti við Látravík
Lendingin og uppgangan
Lendingin og uppgangan
Það var mikið brimrót
Það var mikið brimrót
Svenni og Skúli staðnir á fætur á ný og láta sem ekkert sé...
Svenni og Skúli staðnir á fætur á ný og láta sem ekkert sé...
Siggi Steini og Ævar koma með farangurinn
Siggi Steini og Ævar koma með farangurinn
Listerinn togar upp farangurinn
Listerinn togar upp farangurinn
Sólarvörnin borin á fyrir fyrstu vettvangsskoðun...
Sólarvörnin borin á fyrir fyrstu vettvangsskoðun...
Hrafnhildur sæta!
Hrafnhildur sæta!
Sigurlaug, María og Inger
Sigurlaug, María og Inger
Horft til baka að Hornbjargsvita
Horft til baka að Hornbjargsvita
Tófa með 2 ylfinga kom í ,,matarheimsókn í vitann þegar kvölda tók
Tófa með 2 ylfinga kom í ,,matarheimsókn" í vitann þegar kvölda tók
Það stoppaði þó ekki menn í því að sofa úti undir berum himni
Það stoppaði þó ekki menn í því að sofa úti undir berum himni
KK leist ekkert á uppátækið og úr varð Hornbjargsvitablús
KK leist ekkert á uppátækið og úr varð Hornbjargsvitablús
Svenni og Skúli búnir að hreiðra um sig fyrir utan vitann
Svenni og Skúli búnir að hreiðra um sig fyrir utan vitann
Á leið upp Almenningaskarð
Á leið upp Almenningaskarð
Nestisstopp. Við blasa f.v.: Skófnaberg, Eilífstindur og Kálfatindur.
Nestisstopp. Við blasa f.v.: Skófnaberg, Eilífstindur og Kálfatindur.
Stígur í hlíð Skófnabergsins og fram undan eru Eilífstindur og Kálfatindur fjærst
Stígur í hlíð Skófnabergsins og fram undan eru Eilífstindur og Kálfatindur fjærst
Séð yfir Hornvík - Sædísin á ferð í víkinni
Séð yfir Hornvík - Sædísin á ferð í víkinni
Stígurinn týndur í gróðrinum
Stígurinn týndur í gróðrinum
Kíkt af bjarginu og niður í sjó
Kíkt af bjarginu og niður í sjó
Svanhildur
Svanhildur
Nonni og Sibba
Nonni og Sibba
Bessi á leið upp á topp Kálfatinda
Bessi á leið upp á topp Kálfatinda
Á niðurleið. Skýin byrjuð að laumast inn í Hornvíkina
Á niðurleið. Skýin byrjuð að laumast inn í Hornvíkina
Einar Sveinn og Egill Logi við upphaf göngu þeirra yfir Kýrskarð
Einar Sveinn og Egill Logi við upphaf göngu þeirra yfir Kýrskarð
Egill Logi lagður af stað
Egill Logi lagður af stað
Einar Sveinn og Svenni
Einar Sveinn og Svenni
Agli Loga farið að hitna á göngunni
Agli Loga farið að hitna á göngunni
...Bolla líka
...Bolla líka
Egill Logi á niðurleið ásamt Einari Sveini og Svenna
Egill Logi á niðurleið ásamt Einari Sveini og Svenna
Egill Logi dorgar í Hafnarósi í Hornvík
Egill Logi dorgar í Hafnarósi í Hornvík
Bolli veiðimaður
Bolli veiðimaður
Huuu, ekkert veiddist
Huuu, ekkert veiddist
Egill Logi týndi blóm handa mömmu sinni á heimleiðinni
Egill Logi týndi blóm handa mömmu sinni á heimleiðinni
Búið að labba upp úr þokunni í Hornvíkinni
Búið að labba upp úr þokunni í Hornvíkinni
Bolli kælir sig í hitanum
Bolli kælir sig í hitanum
Í Kýrskarði á heimleið, Hornbjargsviti kominn í ljós fyrir neðan
Í Kýrskarði á heimleið, Hornbjargsviti kominn í ljós fyrir neðan
Fleiri blóm fyrir mömmu
Fleiri blóm fyrir mömmu
Hornbjargsvitablús frá kvöldinu áður rifjaður upp í lok dagsins
Hornbjargsvitablús frá kvöldinu áður rifjaður upp í lok dagsins
Gert klárt fyrir brottför frá Látravík yfir til Bolungarvíkur
Gert klárt fyrir brottför frá Látravík yfir til Bolungarvíkur
Sædísin komin að sækja hópinn
Sædísin komin að sækja hópinn
Bessi horfir í átt að Göngumannaskarði af Axarfjalli
Bessi horfir í átt að Göngumannaskarði af Axarfjalli
Hrafnhildur
Hrafnhildur
Bessi spáir í hæðarlínur
Bessi spáir í hæðarlínur
Hádegisverðarstopp
Hádegisverðarstopp
Barðsvíkurbrekkur. Göngumannaskarð í fjarska.
Barðsvíkurbrekkur. Göngumannaskarð í fjarska.
Í Skarðsfjalli Barðsvíkurmegin
Í Skarðsfjalli Barðsvíkurmegin
Twixtime! Í fjarska gnæfir Kálfatindur í Hornbjargi yfir Almenningaskarðið með Skófnabergið til hægri
Twixtime! Í fjarska gnæfir Kálfatindur í Hornbjargi yfir Almenningaskarðið með Skófnabergið til hægri
Jibbí jei - komin upp á Skarðsfjall
Jibbí jei - komin upp á Skarðsfjall
...og búið að klöngrast yfir. Húsin í Bolungarvík í augnsýn
...og búið að klöngrast yfir. Húsin í Bolungarvík í augnsýn
Bolli sér Bessa og Hrafnhildi í skafli efst í Skarðsfjalli vestan við Göngumannaskarð
Bolli sér Bessa og Hrafnhildi í skafli efst í Skarðsfjalli vestan við Göngumannaskarð
Bessi og Hrafnhildur komin, alveg svakalega ánægð, niður í Bolungarvík
Bessi og Hrafnhildur komin, alveg svakalega ánægð, niður í Bolungarvík
Sjófarendur búnir að koma sér vel fyrir í Bolungarvík
Sjófarendur búnir að koma sér vel fyrir í Bolungarvík
Vilmundur og Egill Logi á fjórhjólinu að ferja farangur
Vilmundur og Egill Logi á fjórhjólinu að ferja farangur
Skúli
Skúli
María, Svanhildur og Hrafnhildur
María, Svanhildur og Hrafnhildur
Kría fyrir matinn
Kría fyrir matinn
Lagt á borð. Egill Logi orðinn glor...
Lagt á borð. Egill Logi orðinn glor...
Bolli og Skúli
Bolli og Skúli
María, Halldór, Svanhildur og Sveinn
María, Halldór, Svanhildur og Sveinn
Flugurnar héldu að þeim væri einnig boðið til kvöldverðar
Flugurnar héldu að þeim væri einnig boðið til kvöldverðar
Varðeldur í Bolungarvík. Inger, Bolli og Egill Logi
Varðeldur í Bolungarvík. Inger, Bolli og Egill Logi
Við varðeldinn
Við varðeldinn
Það er fútt í netakúlum!
Það er fútt í netakúlum!
Lagt af stað úr Bolungarvík. Hrafnhildur, Svanhildur, Halldór og María
Lagt af stað úr Bolungarvík. Hrafnhildur, Svanhildur, Halldór og María
Veðrið lék áfram við okkur
Veðrið lék áfram við okkur
Bolungarvíkurófæra
Bolungarvíkurófæra
Í Bolungarvíkurófæru
Í Bolungarvíkurófæru
Jafnvægislistir hjá Bolla
Jafnvægislistir hjá Bolla
Inger, María og Svanhildur
Inger, María og Svanhildur
Áin vaðin í Furufirði
Áin vaðin í Furufirði
Hrafnhildur í Svartaskarði upp af Furufirði
Hrafnhildur í Svartaskarði upp af Furufirði
Hrafnhildur með Drangajökul og Hljóðabungu í baksýn
Hrafnhildur með Drangajökul og Hljóðabungu í baksýn
Hópurinn á fönn efst í Svartaskarði
Hópurinn á fönn efst í Svartaskarði
Frá Svartaskarði. Hér blasa Hrollleifsborg, Reyðarbunga og Hljóðabunga við í Drangajökli
Frá Svartaskarði. Hér blasa Hrollleifsborg, Reyðarbunga og Hljóðabunga við í Drangajökli
...og yfir Þaralátursfjörðinn
...og yfir Þaralátursfjörðinn
Komin yfir Svartaskarð og í Þararlátursfjörð
Komin yfir Svartaskarð og í Þararlátursfjörð
Grillir í hluta hópsins vaða Jökulsá í Þararlátursfirði
Grillir í hluta hópsins vaða Jökulsá í Þararlátursfirði
Halldór og María
Halldór og María
Komið í Reykjarfjörð
Komið í Reykjarfjörð
Í sundi í Reykjarfirði
Í sundi í Reykjarfirði
Skúli og Bessi voru grillmeistarar kvöldsins
Skúli og Bessi voru grillmeistarar kvöldsins
Hjálparkokkarnir Halldór og Jón Páll
Hjálparkokkarnir Halldór og Jón Páll
Hrafnhildur gerir skóna klára fyrir næsta dag
Hrafnhildur gerir skóna klára fyrir næsta dag
Bessi og Inger
Bessi og Inger
Spáð í næstu dagleið
Spáð í næstu dagleið
Fæturnir á Hrafnhildi orðnir frekar ósáttir við gönguskóna!
Fæturnir á Hrafnhildi orðnir frekar ósáttir við gönguskóna!
Úti var ausandi rigning og spennan í hámarki!
Úti var ausandi rigning og spennan í hámarki!
Beðið eftir Sædísi sem hluti hópsins fór með til Norðurfjarðar
Beðið eftir Sædísi sem hluti hópsins fór með til Norðurfjarðar
Göngugarpar komnir yfir Reykjarfjarðarós, sem var djúpur og straummikill
Göngugarpar komnir yfir Reykjarfjarðarós, sem var djúpur og straummikill
Fljótlega hætti að rigna
Fljótlega hætti að rigna
Inger með Drangaskörðin baksýn
Inger með Drangaskörðin baksýn
Bjarnarfjörður. Skúli skoðar GPS-inn
Bjarnarfjörður. Skúli skoðar GPS-inn
Í Bjarnarfjarðarósi. Halldór, Jón Páll, María og Davíð Guðni
Í Bjarnarfjarðarósi. Halldór, Jón Páll, María og Davíð Guðni
Bessi og Inger í kofanum á Dröngum
Bessi og Inger í kofanum á Dröngum
Frágangur að Dröngum
Frágangur að Dröngum
Sumir gistu í tjöldum
Sumir gistu í tjöldum
Sigurlaug
Sigurlaug
Inger við Drangaskörð
Inger við Drangaskörð
Drangaskörð
Drangaskörð
Halldór og Skúli
Halldór og Skúli
María og Jón Páll
María og Jón Páll
Í Drangavík
Í Drangavík
Drangavíkurá
Drangavíkurá
Í Drangavík
Í Drangavík
Eyðibýlið í Drangavík
Eyðibýlið í Drangavík
Eyðibýlið í Drangavík. Drangaskörð í baksýn
Eyðibýlið í Drangavík. Drangaskörð í baksýn
Hópurinn undir steinboganum í Drangavík
Hópurinn undir steinboganum í Drangavík
Egill Logi að veiða í Ófeigsfirði meðan beðið var eftir göngufólkinu
Egill Logi að veiða í Ófeigsfirði meðan beðið var eftir göngufólkinu
Bolli notaði tímann líka til að veiða
Bolli notaði tímann líka til að veiða
Engin veiði!
Engin veiði!
Komið að Eyvindarfjarðará
Komið að Eyvindarfjarðará
Brúin yfir Eyvindarfjarðará
Brúin yfir Eyvindarfjarðará
„Inger komdu og sjáðu hvað er hérna hinum megin við hæðina“
„Inger komdu og sjáðu hvað er hérna hinum megin við hæðina“
Á leiðarenda! Bessi, Inger og Hrafnhildur
Á leiðarenda! Bessi, Inger og Hrafnhildur
Brúin yfir Hvalá. Bessi, Egill Logi, Hrafnhildur og Inger
Brúin yfir Hvalá. Bessi, Egill Logi, Hrafnhildur og Inger
Jón Páll og Davíð Guðni líka komnir á leiðarenda
Jón Páll og Davíð Guðni líka komnir á leiðarenda
María og Sigurlaug á leið yfir Hvalá
María og Sigurlaug á leið yfir Hvalá
...og Halldór og Skúli
...og Halldór og Skúli
Glaðir ferðalangar við Hvalá í Ófeigsfirði
Glaðir ferðalangar við Hvalá í Ófeigsfirði
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page