photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Hornstrandir 2007: Látravík – Hornvík – Bolungarvík – Reykjarfjörður – Drangar tree view | thumbnails | slideshow

Hornstrandir 2007: Látravík – Hornvík – Bolungarvík – Reykjarfjörður – Drangar

Um miðjan júlí 2007 hélt vinahópurinn í BÍP á ný vestur á Strandir – í fimmta sinn - og nú var fullskipað. Að venju var ekið rakleiðis í Norðurfjörð þar sem gist var í góðu yfirlæti. Morguninn eftir, sunnudaginn 15. júlí var haldið af stað með þeim heiðursmönnum og fóstbræðrum, Reimari og Sigga Steina á Sædísi norður í Látravík, þar sem dvalið var í Hornsbjargsvita í tvær nætur hjá Unu og Ævari. Lendingin gekk vel enda Siggi Steini annálaður meistari í meðförum við bátinn, en þó tókst Skúla og Svenna að leggjast kylliflatir í sjávarrótið í fjörunni. Afleiðingin varð m.a. sú að kvikmyndatökuvélin hans Skúla sofnaði svefninum langa.

Daginn eftir, 16. júlí, var skipt liði, við feðgar, ég og Egill Logi, gengum ásamt feðgum, Svenna og Einari Sveini, yfir Kýrskarð til Hornvíkur en aðrir í hópnum til sama áfangastaðar um Almenningaskarð með viðkomu á Kálfatindum. Við Egill höfðum með okkur veiðistöng, hugðumst veiða í soðið í ósnum en misstum af flóðinu og veiddum ekki bröndu. Ekki bætti úr skák að Egill Logi horfði stöðugt til fjalla í leit að móður sinni og varð því fremur dapur er við urðum úrkula vonar um að hún léti sjá sig þar neðra. Á leið til baka kættist hann þó allnokkuð í blómabreiðum, þar sem hann týndi fallega vendi til að gefa móður sinni.

Á þriðja degi, 17. júlí, var haldið áleiðis til baka með Reimari og Sigga Steina, nú til Bolungarvíkur á Ströndum, þar sem ráða ríkjum Sigfríður og Vilmundur, sonarsonur hennar, sonur Reimars á Sædísi. Ekki slóust þó allir í hópnum með í för sjóleiðina því einhverra hluta vegna sá Bessi sig tilneyddan til að ganga leiðina aftur, en hann fór hana einnig í fyrra. Ekki var á annað hættandi en að Hrafnhildur fylgdi drengnum. Þau gengu efri leiðina svokölluðu, það er gengu ekki ofan í firði og víkur heldur héldu sig alla leiðina í “hæð” og því inn firði og víkur. Því lengist gatan sem því nam. Í Bolungarvík gistum við eina nótt áður en haldið var af stað aftur.

Á fjórða degi, 18. júlí, gengum við til Reykjarfjarðar, um Furufjörð og Þaralátursfjörð, og það var mjög sérstakt að ekki heyrðist í mófugli fyrr en komið var í Þaralátursfjörð enda refurinn alls ráðandi um flesta firði. Annars var bara þögn og auk þess ekkert sem benti til vegsummerki manna. Það er auðvelt að ímynda sér að maður sé á ferð í kringum árið 1000, þarna sem víða annars staðar á Ströndum. Sérstök tilfinning.

Á fimmta degi héldum við Egill Logi, Svenni, Svanhildur og Einar Sveinn til Norðurfjarðar á ný en aðrir í hópnum gengu að Dröngum. Úrhellisrigning var í Reykjarfirði um morguninn og runnu satt að segja tvær grímur á suma hvort leggja ætti af stað. Síðan stytti upp og hópurinn þusti af stað. Þurrt var að mestu yfir daginn en svo fór að rigna allhressilega og er komið var að Dröngum var ekki þurr þráður í flíkunum. Að Dröngum gisti hópurinn ýmist í tjöldum eða í hálfköruðum kofa við tjaldstæðið.

Er við, sem fórum til Norðurfjarðar, komum þangað fóru Svenni og Svanhildur til Reykjavíkur en við Egill Logi fórum rakleitt í sund, þar sem við svömluðum góða stund og grilluðum svo í rólegheitum um kvöldið.

Sólin vakti göngugarpa að Dröngum morguninn eftir og höfðu allir nóg að gera við að viðra föt og viðlegubúnað áður en gengið var af stað síðasta áfangann til Ófeigsfjarðar. Að lokinni sundferð fórum við Egill Logi að tygja okkur af stað til Ingólfsfjarðar og áfram til Ófeigsfjarðar, dunduðum okkur við að “veiða” í köldustu og vatnsmestu bergvatnsá landsins, Hvalá, meðan við biðum eftir göngugörpunum. Ánægjan í augum Egils Loga er ólýsanleg er hann kom auga á móður sína í kíkinum í fjarska enda rauk hann þegar af stað og var óðar horfinn. Við, ég og kíkirinn, urðum eftir og biðum þolinmóðir. Í Ófeigsfirði lauk göngunni miklu. Slegið var upp heljarinnar pylsuveislu í Norðurfirði um kvöldið áður en haldið var af stað á ný til borgarinnar. Hákon Örn Halldósson, vélstjóri hjá Landhelgisgæslunni, hefur verið mér mjög hjálplegur varðandi rétt örnefni og kann ég honum bestu þakkir fyrir.
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Fleiri blóm fyrir mömmu
Fleiri blóm fyrir mömmu
Hornbjargsvitablús frá kvöldinu áður rifjaður upp í lok dagsins
Hornbjargsvitablús frá kvöldinu áður rifjaður upp í lok dagsins
Gert klárt fyrir brottför frá Látravík yfir til Bolungarvíkur
Gert klárt fyrir brottför frá Látravík yfir til Bolungarvíkur
Sædísin komin að sækja hópinn
Sædísin komin að sækja hópinn
Bessi horfir í átt að Göngumannaskarði af Axarfjalli
Bessi horfir í átt að Göngumannaskarði af Axarfjalli
Hrafnhildur
Hrafnhildur
Bessi spáir í hæðarlínur
Bessi spáir í hæðarlínur
Hádegisverðarstopp
Hádegisverðarstopp
Barðsvíkurbrekkur. Göngumannaskarð í fjarska.
Barðsvíkurbrekkur. Göngumannaskarð í fjarska.
Í Skarðsfjalli Barðsvíkurmegin
Í Skarðsfjalli Barðsvíkurmegin
Twixtime! Í fjarska gnæfir Kálfatindur í Hornbjargi yfir Almenningaskarðið með Skófnabergið til hægri
Twixtime! Í fjarska gnæfir Kálfatindur í Hornbjargi yfir Almenningaskarðið með Skófnabergið til hægri
Jibbí jei - komin upp á Skarðsfjall
Jibbí jei - komin upp á Skarðsfjall
...og búið að klöngrast yfir. Húsin í Bolungarvík í augnsýn
...og búið að klöngrast yfir. Húsin í Bolungarvík í augnsýn
Bolli sér Bessa og Hrafnhildi í skafli efst í Skarðsfjalli vestan við Göngumannaskarð
Bolli sér Bessa og Hrafnhildi í skafli efst í Skarðsfjalli vestan við Göngumannaskarð
Bessi og Hrafnhildur komin, alveg svakalega ánægð, niður í Bolungarvík
Bessi og Hrafnhildur komin, alveg svakalega ánægð, niður í Bolungarvík
Sjófarendur búnir að koma sér vel fyrir í Bolungarvík
Sjófarendur búnir að koma sér vel fyrir í Bolungarvík
Vilmundur og Egill Logi á fjórhjólinu að ferja farangur
Vilmundur og Egill Logi á fjórhjólinu að ferja farangur
Skúli
Skúli
María, Svanhildur og Hrafnhildur
María, Svanhildur og Hrafnhildur
Kría fyrir matinn
Kría fyrir matinn
Lagt á borð. Egill Logi orðinn glor...
Lagt á borð. Egill Logi orðinn glor...
Bolli og Skúli
Bolli og Skúli
María, Halldór, Svanhildur og Sveinn
María, Halldór, Svanhildur og Sveinn
Flugurnar héldu að þeim væri einnig boðið til kvöldverðar
Flugurnar héldu að þeim væri einnig boðið til kvöldverðar
Varðeldur í Bolungarvík. Inger, Bolli og Egill Logi
Varðeldur í Bolungarvík. Inger, Bolli og Egill Logi
Við varðeldinn
Við varðeldinn
Það er fútt í netakúlum!
Það er fútt í netakúlum!
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page