photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Hornstrandir 2007: Látravík – Hornvík – Bolungarvík – Reykjarfjörður – Drangar tree view | thumbnails | slideshow

Hornstrandir 2007: Látravík – Hornvík – Bolungarvík – Reykjarfjörður – Drangar

Um miðjan júlí 2007 hélt vinahópurinn í BÍP á ný vestur á Strandir – í fimmta sinn - og nú var fullskipað. Að venju var ekið rakleiðis í Norðurfjörð þar sem gist var í góðu yfirlæti. Morguninn eftir, sunnudaginn 15. júlí var haldið af stað með þeim heiðursmönnum og fóstbræðrum, Reimari og Sigga Steina á Sædísi norður í Látravík, þar sem dvalið var í Hornsbjargsvita í tvær nætur hjá Unu og Ævari. Lendingin gekk vel enda Siggi Steini annálaður meistari í meðförum við bátinn, en þó tókst Skúla og Svenna að leggjast kylliflatir í sjávarrótið í fjörunni. Afleiðingin varð m.a. sú að kvikmyndatökuvélin hans Skúla sofnaði svefninum langa.

Daginn eftir, 16. júlí, var skipt liði, við feðgar, ég og Egill Logi, gengum ásamt feðgum, Svenna og Einari Sveini, yfir Kýrskarð til Hornvíkur en aðrir í hópnum til sama áfangastaðar um Almenningaskarð með viðkomu á Kálfatindum. Við Egill höfðum með okkur veiðistöng, hugðumst veiða í soðið í ósnum en misstum af flóðinu og veiddum ekki bröndu. Ekki bætti úr skák að Egill Logi horfði stöðugt til fjalla í leit að móður sinni og varð því fremur dapur er við urðum úrkula vonar um að hún léti sjá sig þar neðra. Á leið til baka kættist hann þó allnokkuð í blómabreiðum, þar sem hann týndi fallega vendi til að gefa móður sinni.

Á þriðja degi, 17. júlí, var haldið áleiðis til baka með Reimari og Sigga Steina, nú til Bolungarvíkur á Ströndum, þar sem ráða ríkjum Sigfríður og Vilmundur, sonarsonur hennar, sonur Reimars á Sædísi. Ekki slóust þó allir í hópnum með í för sjóleiðina því einhverra hluta vegna sá Bessi sig tilneyddan til að ganga leiðina aftur, en hann fór hana einnig í fyrra. Ekki var á annað hættandi en að Hrafnhildur fylgdi drengnum. Þau gengu efri leiðina svokölluðu, það er gengu ekki ofan í firði og víkur heldur héldu sig alla leiðina í “hæð” og því inn firði og víkur. Því lengist gatan sem því nam. Í Bolungarvík gistum við eina nótt áður en haldið var af stað aftur.

Á fjórða degi, 18. júlí, gengum við til Reykjarfjarðar, um Furufjörð og Þaralátursfjörð, og það var mjög sérstakt að ekki heyrðist í mófugli fyrr en komið var í Þaralátursfjörð enda refurinn alls ráðandi um flesta firði. Annars var bara þögn og auk þess ekkert sem benti til vegsummerki manna. Það er auðvelt að ímynda sér að maður sé á ferð í kringum árið 1000, þarna sem víða annars staðar á Ströndum. Sérstök tilfinning.

Á fimmta degi héldum við Egill Logi, Svenni, Svanhildur og Einar Sveinn til Norðurfjarðar á ný en aðrir í hópnum gengu að Dröngum. Úrhellisrigning var í Reykjarfirði um morguninn og runnu satt að segja tvær grímur á suma hvort leggja ætti af stað. Síðan stytti upp og hópurinn þusti af stað. Þurrt var að mestu yfir daginn en svo fór að rigna allhressilega og er komið var að Dröngum var ekki þurr þráður í flíkunum. Að Dröngum gisti hópurinn ýmist í tjöldum eða í hálfköruðum kofa við tjaldstæðið.

Er við, sem fórum til Norðurfjarðar, komum þangað fóru Svenni og Svanhildur til Reykjavíkur en við Egill Logi fórum rakleitt í sund, þar sem við svömluðum góða stund og grilluðum svo í rólegheitum um kvöldið.

Sólin vakti göngugarpa að Dröngum morguninn eftir og höfðu allir nóg að gera við að viðra föt og viðlegubúnað áður en gengið var af stað síðasta áfangann til Ófeigsfjarðar. Að lokinni sundferð fórum við Egill Logi að tygja okkur af stað til Ingólfsfjarðar og áfram til Ófeigsfjarðar, dunduðum okkur við að “veiða” í köldustu og vatnsmestu bergvatnsá landsins, Hvalá, meðan við biðum eftir göngugörpunum. Ánægjan í augum Egils Loga er ólýsanleg er hann kom auga á móður sína í kíkinum í fjarska enda rauk hann þegar af stað og var óðar horfinn. Við, ég og kíkirinn, urðum eftir og biðum þolinmóðir. Í Ófeigsfirði lauk göngunni miklu. Slegið var upp heljarinnar pylsuveislu í Norðurfirði um kvöldið áður en haldið var af stað á ný til borgarinnar. Hákon Örn Halldósson, vélstjóri hjá Landhelgisgæslunni, hefur verið mér mjög hjálplegur varðandi rétt örnefni og kann ég honum bestu þakkir fyrir.
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Á leið vestur
Á leið vestur
Í Djúpavík var tímabært að hleypa úr
Í Djúpavík var tímabært að hleypa úr
Í Krossneslaug
Í Krossneslaug
Inger, Sibba, Sigurlaug, Jón og Bessi
Inger, Sibba, Sigurlaug, Jón og Bessi
Beðið eftir brottför frá Norðurfirði
Beðið eftir brottför frá Norðurfirði
Egill Logi varð þræl sjóveikur!
Egill Logi varð þræl sjóveikur!
Svenni og Einar Sveinn
Svenni og Einar Sveinn
Bræðurnir Jón Páll og Davíð Guðni
Bræðurnir Jón Páll og Davíð Guðni
Drangaskörð sunnan megin
Drangaskörð sunnan megin
Drangaskörð norðan megin
Drangaskörð norðan megin
Reykjarfjörður. Hrolleifsborg í Drangajökli í fjarska
Reykjarfjörður. Hrolleifsborg í Drangajökli í fjarska
Bolli og Egill Logi
Bolli og Egill Logi
Undir Hornbjargi
Undir Hornbjargi
Sigurlaug og Skúli
Sigurlaug og Skúli
Sibba fylgist með fuglalífinu undir Súlnastapa undan Hvanndal, sem er inn af Hælavíkurbjargi
Sibba fylgist með fuglalífinu undir Súlnastapa undan Hvanndal, sem er inn af Hælavíkurbjargi
Ha ha ha ha ha ha...
Ha ha ha ha ha ha...
Svanhildur, Nonni, Svenni, María og Inger
Svanhildur, Nonni, Svenni, María og Inger
Hornbjargsviti við Látravík
Hornbjargsviti við Látravík
Lendingin og uppgangan
Lendingin og uppgangan
Það var mikið brimrót
Það var mikið brimrót
Svenni og Skúli staðnir á fætur á ný og láta sem ekkert sé...
Svenni og Skúli staðnir á fætur á ný og láta sem ekkert sé...
Siggi Steini og Ævar koma með farangurinn
Siggi Steini og Ævar koma með farangurinn
Listerinn togar upp farangurinn
Listerinn togar upp farangurinn
Sólarvörnin borin á fyrir fyrstu vettvangsskoðun...
Sólarvörnin borin á fyrir fyrstu vettvangsskoðun...
Hrafnhildur sæta!
Hrafnhildur sæta!
Sigurlaug, María og Inger
Sigurlaug, María og Inger
Horft til baka að Hornbjargsvita
Horft til baka að Hornbjargsvita
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page