photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Jökulheimar - Breiðbakur - Hólaskjól - 1. - 2. mars 2008 tree view | thumbnails | slideshow

Jökulheimar - Breiðbakur - Hólaskjól - 1. - 2. mars 2008

Fyrstu helgina í mars fórum við félagarnir, ég og Steini mágur, Jón Sverrir og Þóra, Einar Gylfa og Steini og Rikki og Snorri í ferð sem upphaflega var skipulögð af Útivist. Vegna ónógrar þátttöku var ferðinni aflýst en þeir sem skráðu sig rottuðu sig saman og ákváðu að fara engu að síður, fararstjóralausir, semsé án Nóna, með þeirri breytingu þó að halda á laugardagskvöldi til Landmannalauga þegar komið væri niður á N-Fjallabak, í stað Hólaskjóls. Reyndin varð þó Hólaskjól vegna erfiðasta færis sem ég hef nokkru sinni kynnst. Við gistum þó ekki í Hólaskjóli síðari nóttina eins og ætlunin var heldur ákváðum við að halda áfram til Hótels Dyrhólaeyjar (Brekkna), en þangað renndum við í hlað í blindbyl og roki klukkan rúmlega tvö um nóttina. Morguninn eftir, sunnudag, var sama blindan, það sá ekki út úr augum er við lögðum af stað í bæinn.

Þetta var ákaflega skemmtileg ferð. Við byrjuðum í Hrauneyjum, þar sem við fylltum okkur af frábærri kjötsúpu og jeppana af sínum drykk. Síðan héldum við í Jökulheima í góðu skyggni og rennifæri og gistum í eldri skálanum. Laugardagurinn tók við bjartur og fagur með um 8 stiga frosti. Ferðin á Breiðbak sóttist vel eftir alveg einstaklega fallegri leið um hæðir og drög. Eftir því sem nær dró Nyrðra Fjallabaki versnaði færið og varð hreint út sagt alveg skelfilegt og hélst þannig til Herðubreiðarháls, þar sem við komumst í slóð Víkverja, sem höfðu verið þarna fyrr um daginn og freistað þess að halda í átt til Langasjávar án árangurs.

Í ferðinni voru upphaflega 22 á tíu bílum (Hilux, Trooper, LC70, RAM, Patrol, AMC, LC60 og þrír LC80), en í Jökulheimum bættist Guðmundur á Pamelu (LC80) í hópinn sem var á leið til Hólaskjóls. Hann fór þó á endanum til byggða. Af 11 bílum brutu tveir framöxul vinstra megin og á einum brotnaði drifloka. Er við komum í Hólaskjól kom einnig í ljós að þar var líka bíll með brotinn framöxul eftir ferðalagið yfir Herðubreiðarháls.

Hiluxinn fór þetta á seiglunni eins og venjulega og var ekkert að flýta sér fremur en fyrri daginn. Það borgar sig stundum (ekki oft) að vera með takmarkað afl, sem forðar manni m.a. frá átakstjónum. Hinu er ekki að neita að oft saknaði maður aflsins hjá Jóni Sverri eða t.d. yfirbyggða vélsleðans hjá Rikka (8 strokka Willi) og þeirra í (Land Crúser genginu) sem voru með okkur. Það verður ekki á allt kosið í þessum efnum!
previous pagepages 1 2 3 ALL next page
Hópurinn lagður af stað úr Hrauneyjum
Hópurinn lagður af stað úr Hrauneyjum
Jón Sverrir tappar af
Jón Sverrir tappar af
Gamli skálinn Jökulheimum
Gamli skálinn Jökulheimum
Einar og Moldi
Einar og Moldi
Steini, Jón Sverrir og Þóra
Steini, Jón Sverrir og Þóra
Jón smiður
Jón smiður
Rikki upprisinn á laugardagsmorgni
Rikki upprisinn á laugardagsmorgni
Rikki og Steini á spjalli
Rikki og Steini á spjalli
Líður að brottför
Líður að brottför
Fallegur morgunn, heiðskýr og -8°C
Fallegur morgunn, heiðskýr og -8°C
Leiðin frá Jökulheimum
Leiðin frá Jökulheimum
María göngugarpur farin á jökul
María göngugarpur farin á jökul
Við gættum þess að fara örugglega í hina áttina!
Við gættum þess að fara örugglega í hina áttina!
g1/12/32712/2/93720292.ZKh6zOzJ.jpg g1/12/32712/2/93720293.OiJQZuAt.jpg
Rikki á AMC, sem við köllum yfirbyggða vélsleðann
Rikki á AMC, sem við köllum yfirbyggða vélsleðann
g1/12/32712/2/93720296.7J5yFgia.jpg Jón og Þóra
Jón og Þóra
g1/12/32712/2/93720298.gE9zMiHi.jpg Jæja, menn loks byrjaðir að festa sig!
Jæja, menn loks byrjaðir að festa sig!
Jói Gaukur, LC80 á 47
Jói Gaukur, LC80 á 47"
Ágúst á Krílinu; LC80 á 46
Ágúst á Krílinu; LC80 á 46"
Færið orðið mjög þungt
Færið orðið mjög þungt
Nonni á LC60 á 44
Nonni á LC60 á 44"
g1/12/32712/2/93720304.loxL0eXR.jpg g1/12/32712/2/93720305.u070IVaq.jpg Jón Sverrir og Einar Gylfa
Jón Sverrir og Einar Gylfa
previous pagepages 1 2 3 ALL next page