Í árlegri sumarferð BÍP sem farin var dagana 3.-8. ágúst var ferðast um Suðurland. Lagt var af stað á frídegi verslunarmanna og gist fyrstu nóttina í Álftaveri. Aðrar nætur vorum við í Hofgarði í Öræfum. Eins og sjá má var ýmislegt brallað; hjólað, gengið, klifrað, vaðið, ekið, eldað, etið og drukkið. Myndirnar tóku Bolli, Hrafnhildur, Svenni og Svanhildur.