photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Nýidalur - Fossaleiti - Vonarskarð - Jökulheimar - Tröllhamar - Lakar - Þverárdalur - okt. 2010 tree view | thumbnails | slideshow

Nýidalur - Fossaleiti - Vonarskarð - Jökulheimar - Tröllhamar - Lakar - Þverárdalur - okt. 2010

Við Jón Svanþórs, Skúli og Bessi, Jón Sverrir og Þóra slógumst í för með félögum okkar í Skeljungsgrúppunni svokölluðu í þeirra árlegu haustferð. Hjónin Bjössi Erlings og Jóna voru búin að skipuleggja allt að vanda og taka til kvöldsteikina á laugardagskvöldinu. Fórum í Nýjadal á föstudagskvöld. Á laugardegi fórum við norðurfyrir Tungnafellsjökul að fossinum Gjallanda og áfram hjá Fossaleiti og yfir Gjóstuklif í Valafelli yfir í Vonarskarð (e. Bárðargötu). Þaðan áfram hjá Snapadal, suður með Köldukvíslarjökli til Jökulheima þar sem við gistum. Á sunnudeginum fórum við yfir Tungnaá og með Tungnaárjökli að upptökum Skaftár undir Skaftárjökli, þaðan áfram hjá Fljótsodda uppá Tröllhamar, þaðan með Blæng og Miklafelli og Þverárdal og út á Þjóðveg 1 við Orustuhól, skammt frá afleggjara til Brunasands. Þetta var einstaklega vel heppnuð ferð. Vorum í blankalogni allan tímann en um 8-10 stiga frosti, í hvínandi norðurljósum í Nýjadal og alls herjar jólasnjókomu í Jökulheimum. En alltaf í blankalogni. Myndir Bjössa og Jónu eru hér. Einnig er ástæða til að benda gestum síðunnar á ágætan pistil Soffíu Sigurðardóttur um tillögu stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um lokun Vonarskarðs, sem hún segir óskiljanlega.Myndir annarra en Bolla eru merktar sérstaklega. Sjá einnig stutt myndband frá Skúla.
previous pagepages 1 2 3 ALL next page
Leiðin með jökli
Leiðin með jökli
Nýkomnir í Nýjadal
Nýkomnir í Nýjadal
Steindór og Bolli undirbúa kaffiuppáhelling
Steindór og Bolli undirbúa kaffiuppáhelling
Skúli Spielberg
Skúli Spielberg
Snemma laugardagsmorgunnÁ Gæsavatnaleið - „Austurleið“
Snemma laugardagsmorgunn
Á Gæsavatnaleið - „Austurleið“
Fljótsborg
Fljótsborg
Gjallandi í Skjálfandafljóti
Gjallandi í Skjálfandafljóti
Trölladyngja
Trölladyngja
Bálkafell
Bálkafell
Hníflar, milli Innsta Bálkafells t.v. og Valafells t.h.
Hníflar, milli Innsta Bálkafells t.v. og Valafells t.h.
Vind- og vatnsbarðir
Vind- og vatnsbarðir
Kvíslar Skjálfandafljóts
Kvíslar Skjálfandafljóts
Þóra, Rikki fr og Jón Sverrir
Þóra, Rikki fr og Jón Sverrir
Skúli við Skjálfandafljót við Hnífla (Hnýfla)
Skúli við Skjálfandafljót við Hnífla (Hnýfla)
Á leið niður Gjóstuklif til Vonarskarðs
Á leið niður Gjóstuklif til Vonarskarðs
Svarthöfði
Svarthöfði
Tvílitaskarð milli Kolufells og Skrauta
Tvílitaskarð milli Kolufells og Skrauta
„Og hann sást ekki eftir það!“Rikki í Köldukvísl
„Og hann sást ekki eftir það!“
Rikki í Köldukvísl
Syðri Háganga & Nyrðri Háganga t.h.Kvíslahnjúkar á milli.
Syðri Háganga & Nyrðri Háganga t.h.
Kvíslahnjúkar á milli.
Mókollar t.v. Beint framundan er Einbúi
Mókollar t.v. Beint framundan er Einbúi
Jökulruðningar við Sveðju
Jökulruðningar við Sveðju
Sveðja
Sveðja
Krapaflóð 30 mín. eftir að við fórum hjá
Krapaflóð 30 mín. eftir að við fórum hjá
Nornabæli undir Sylgjufelli
Nornabæli undir Sylgjufelli
Er þetta ekki laskaður Wrangler?
Er þetta ekki laskaður Wrangler?
Dór á toppnum.Hann er ekki langt frá Heljargjá
Dór á toppnum.
Hann er ekki langt frá Heljargjá
Mugga á leið í Jökulheima
Mugga á leið í Jökulheima
previous pagepages 1 2 3 ALL next page