photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarđsson | profile | all galleries >> Galleries >> Af Héraði um hálendið heim - marslok 2001 tree view | thumbnails | slideshow

Af Héraði um hálendið heim - marslok 2001

Í mars 2001 héldum við nokkrir félagar á sex bílum austur á Hérað í þeim erindum að snúa við og halda til baka - ekki þó alveg sömu leið! Sumir gistu á Hunkubökkum á leið austur en aðrir óku í einum rikk. Á fimmtudagskvöldi vorum við viðstaddir stofnun Austurlandsdeildar Ferðaklúbbsins 4x4 en snemma morguns föstudaginn 23. mars var haldið af stað. Leiðin lá út Fljótsdal að austanverðu og síðan upp á veginn sem liggur til Snæfells. Við vörðuna Sigþór var eldsneytiskálfur skilinn eftir og haldið í átt til Þrándarjökuls. Vegna mikillar muggu og lélegs skyggnis var hætt við jökulferð að sinni og haldið í fyrsta náttstað, Egilssel við Kollumúla. Á laugardagsmorgni var skíðadrífa og með ólíkindum hversu miklum snjó hafði kygnt niður um nóttina. Leið okkar lá nú í Vatnshlíðar og Marköldu og síðan á Eyjabakka og í Geldingafell við rætur Eyjabakkajökuls. Áfram var haldið, upp á Eyjabakkajökul, litið við í íshelli við Hnútulón, og síðan áfram í annan og frægari við rætur Brúarjökuls og loks í náttstað í Snæfelli. Á sunnudagsmorgni hafði veðrið heldur betur tekið stakkaskiptum. Nú var glampandi sól, logn og heiðskírt. Ekið var áleiðis í vestur yfir Jökulsá á Dal með viðkomu í Sauðárkofa. Stefnan var tekin á Kringilsárrana, komið við hjá Töfrafossi milli jökulsánna tveggja; á Dal og Fjöllum og síðan stefnt á Gæsavötn. Á leið okkar komum við í Grágæsardal og Hvannalindum og kvöddum leiðsögumann okkar, Þórhall Þorsteinsson, við Krepputungur. Þaðan lá leið okkar í skálann í Gæsavötnum. Morguninn eftir hélt hópurinn af stað aftur, nú í Nýjadal, þar sem komin var ausandi stórhríð. Við veltum fyrir okkur að gista en þar sem gamli skálinn þótti ekki of vistlegur var ákveðið að halda áfram í engu skyggni. Leiðin lá í Versali og áfram til Hrauneyja, þangað sem komið var um kl. 21, eftir um 12 tíma akstur frá Gæsavötnum. Þar kvaddist hópurinn og hélt af stað heim til Höfuðborgarinnar. Allar myndir eru Ragnars Th. Sigurðssonar.
previous pagepages 1 2 ALL next page
Egilsstöđum föstudagsmorguninn - kálfurinn fylltur
Egilsstöđum föstudagsmorguninn - kálfurinn fylltur
Á leiđ út Fljótsdal
Á leiđ út Fljótsdal
og upp á heiđina
og upp á heiđina
Á leiđ á Kollumúla
Á leiđ á Kollumúla
Arnar og Hjalti litli
Arnar og Hjalti litli
Spáđ í kortin á leiđ í EgilsselRaggi Th og Ţórhallur
Spáđ í kortin á leiđ í Egilssel
Raggi Th og Ţórhallur
Ríkharđur Már Pétursson
Ríkharđur Már Pétursson
Mágarnir Ţorsteinn Hauksson og Bolli
Mágarnir Ţorsteinn Hauksson og Bolli
Skúli
Skúli
Jón Svanţórsson
Jón Svanţórsson
Bjarni Bjarna, Rikki og Siggi Rögg.
Bjarni Bjarna, Rikki og Siggi Rögg.
Ađ morgni laugardags eftir ofankomu nćturinnar
Ađ morgni laugardags eftir ofankomu nćturinnar
Eyjabökkum, á leiđ í Geldingafell
Eyjabökkum, á leiđ í Geldingafell
Moooka!
Moooka!
Stuttur dráttur!
Stuttur dráttur!
Kofi á kafi!
Kofi á kafi!
Í Eyjabakkajökli
Í Eyjabakkajökli
Ţórir Gísla og Hrollur!
Ţórir Gísla og Hrollur!
Bolli og Steini á leiđ í Snćfell
Bolli og Steini á leiđ í Snćfell
Jón heggur klaka í Snćfelli - í -18°c
Jón heggur klaka í Snćfelli - í -18°c
Bjarni ber matinn inn
Bjarni ber matinn inn
Viđ Hnútulón í Brúarjökli
Viđ Hnútulón í Brúarjökli
Steini og Skúli
Steini og Skúli
Í Kringilsárrana
Í Kringilsárrana
Töfrafoss (sem hverfa mun!)
Töfrafoss (sem hverfa mun!)
,,Og ţetta fer allt á bullandi kaf!
,,Og ţetta fer allt á bullandi kaf!"
Síđustu forvöđ?Raggi Th.
Síđustu forvöđ?
Raggi Th.
previous pagepages 1 2 ALL next page