photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Háamýri - Arnarfellsmúlar - Nauthagi - Nóv. 2003 tree view | thumbnails | slideshow

Háamýri - Arnarfellsmúlar - Nauthagi - Nóv. 2003

Föstudaginn 21. nóvember fórum við á fjórum bílum til Hrauneyja og áfram til Háumýrarskála, húss í eigu Landsvirkjunar. Ferðalangar voru Ragnar Th. og Bolli, Leifur Jónsson, læknir ásamt Rikka, Jón Sverrir og Þóra auk Hauks Geirs Guðnasonar, tæknifræðings, og Þorvarðar Hjaltasonar, rafvirkja. Frá Háumýri var snemma laugardags lagt af stað yfir Þjórsárkvíslar, skammt ofan Háumýrarkvíslar, stefna tekin að rótum Þjórsárjökuls í Hofsjökli þaðan sem haldið var suðurfyrir jökul og yfir Innri Arnarfellskvíslar, uppundir Arnarfelli hinu mikla (á kortum kallað stóra), þaðan með Arnarfellsbrekku, niður með Múlajökli og inn að Ólafsfellslaug undir Nauthagajökli. Þaðan áfram með Nauthaga að rótum Miklukvíslar, þaðan sem Nautöldukofi blasir við hinum megin ár. Kvíslarnar voru bólgnar undir ísnum sem ekki var bílheldur. Var því snúið við aftur til Háumýrar. Í síðustu lænu Þjórsárkvíslar, 4 km. frá Háumýri rifnaði dekk á ísskör og fór því nokkur tími í að skipuleggja ,,björgunarleiðangur" eftir varadekki á felgu. Það barst um miðnætti frá Reykjavík. Hálfur hópurinn hélt heim á leið en hinir gistu í Háumýri. Um nóttina var skipt um dekk en þá var bíllinn svo pikkfrosinn að ákveðið var að láta hann vera til morguns. Vegna veðurs á sunnudag tafðist þó heimför fram á kvöld. Myndir tóku Bolli, Jón, Raggi og Rikki.

Þessi leið var fyrst ekin um 1950. Á henni var fylgt gamalli slóð á hörðu hjarni. Hún er ófær nema mikið breyttum bílum, í kjölfar langvarandi frosta eða á umtalsverðum snjó. Hana verður á köflum að aka með mikilli aðgát og á vel mjúkum hjólbörðum vegna viðkvæms gróðurfars, sem þar er víða að finna. Sjá nánar ákvæði friðlýsingar Þjórsárvera.
previous pagepages 1 2 ALL next page
Tvær stikur á Efri Arnarfellsmúlum
Tvær stikur á Efri Arnarfellsmúlum
Í Efri Arnarfellsmúlum
Í Efri Arnarfellsmúlum
Undir jökli
Undir jökli
Óárennilegur
Óárennilegur
Loðmundur Kerlingafjalla í fjarska
Loðmundur Kerlingafjalla í fjarska
Hjartafell
Hjartafell
Horft í átt til Þjórsárvera og Heklu
Horft í átt til Þjórsárvera og Heklu
Ólafsfellslaug
Ólafsfellslaug
Um 40°C heit
Um 40°C heit
Ekki baðfær
Ekki baðfær
Nautalda og kofinn undir Söðulfelli. Ótraustur ís á Miklukvísl hamlar för lengra
Nautalda og kofinn undir Söðulfelli.
Ótraustur ís á Miklukvísl hamlar för lengra
Miklakvísl bólgin og ekki bílheld
Miklakvísl bólgin og ekki bílheld
Ísinn á Miklukvísl kannaður
Ísinn á Miklukvísl kannaður
Ekki lýst mér á það!
Ekki lýst mér á það!
Ákveðið að snúa við
Ákveðið að snúa við
Á leið til baka. Múlajökull í fjarska
Á leið til baka. Múlajökull í fjarska
Allur tættur!
Allur tættur!
Hágöngur í fjarska
Hágöngur í fjarska
Í einni kvíslinni undir Arnarfelli mikla
Í einni kvíslinni undir Arnarfelli mikla
Komið böndum á hann
Komið böndum á hann
Skorðaður ofan í ánni
Skorðaður ofan í ánni
Dobblað spil og gott ankeri
Dobblað spil og gott ankeri
Þar fór það! (Pickuppinn)
Þar fór það! (Pickuppinn)
Aurora Borealis at Háamýri
Aurora Borealis at Háamýri
Á Kvíslarvatnsvegi
Á Kvíslarvatnsvegi
Við Þúfuvötn
Við Þúfuvötn
Ljósagangurinn tók út staðsetningartækin
Ljósagangurinn tók út staðsetningartækin
previous pagepages 1 2 ALL next page