photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Hágöngur - Vonarskarð - Dreki - Reykjaheiði - Laugafell - Mælifellsdalur - Hveravellir - sep. 2009 tree view | thumbnails | slideshow

Hágöngur - Vonarskarð - Dreki - Reykjaheiði - Laugafell - Mælifellsdalur - Hveravellir - sep. 2009

Á dögunum hljóp með þeim hætti á snærið hjá mér að Sigurlaug hans Skúla sá sér ekki fært vegna anna að trússa þá mótorhjólafélaga norður um hálendið í ferð sem fara átti þá og þegar. Ég gaf mig að sjálfsögðu fram strax enda leiðin spennandi sem fara átti og á henni kaflar sem ég hafði ekki komið á áður. Ég var ráðinn á staðnum af yfirvaldinu til að fylgja þeim félögum eftir á þessari rúmlega 1.200 km leið, sem fara átti á fjórum dagleiðum. Fyrir dyrum stóð n.t. ferð níu roskinna og ráðsettra manna á sk ferðamótorhjólum (BMW, KTM og Kawasaki) frá Landsveit til Hrauneyja, þaðan sem halda skyldi með Sprengisandsleið til vegamóta, þar sem beygt er inná afleggjara til Hágöngulóns. Meðfram lóninu skyldi ekið á slóða til og um Vonarskarð, Gæsavötn, Urðarháls, flæðurnar svokölluðu og allt til Dreka við Öskju. Daginn eftir skyldi farið í Kverkfjöll, þaðan til Kröflu, Mývatns og þaðan í gistingu á Húsavík eftir að hafa ekið á milljón slóðum á Reykjaheiði. Daginn efir skyldi ekið til Akureyrar, m.a. til matvæla- og eldsneytiskaupa. Þaðan yrði ekið upp Eyjafjörð til Laugafells á Kjalvegi, þaðan sem stefnan yrði tekin niður Vesturdal til Skagafjarðar, en beygt inn á leið um Mælifellsdal skömmu áður en komið er að Steinsstöðum í Lýtingsstaðahreppi. Síðan lægi leið yfir Blöndustíflu inná Kjalveg og svo skyldi þrusa til Hveravalla. Leppistungur voru á listanum á leið til Reykjavíkur. Mótorhjólamenn voru eftirtaldir: Skúli Skúlason á BMW 800, Eyþór Örlygsson á BMW 650, Nonni á BMW 650, Ríkarður Már Pétursson á BMW 1200, Valbjörn Jónsson á Kawasaki 650, Birgir Bjarnason á KTM 640, Snorri Gíslason á KTM 990, Karl Geir Arason á BMW 650 og Hlynur Sigursveinsson á KTM 990. Bolli var trússari á Nissan Patrol. Í stuttu máli gekk leiðin upp í meginatriðum eins og hún hafði verið sett upp. Að vísu meiddi Birgir sig skömmu eftir að Flæðunum sleppti svo að hann varð að láta gott heita að kvöldi fyrsta dags. Daginn eftir elti Murphys lögmálið okkur á röndum frá Dreka til Möðrudalsöræfa, sem eru 97 km. Menn drekktu hjólunum í ánum, héldu að þau væru biluð og settu á kerruna og svo framvegis. Því var ákveðið fljótlega að sleppa bæði Kverkfjöllum og Kröflu og einbeita sér að því að komast til næstu mannabyggða, Mývatns. Það tók 8 klukkustundir og raunar meiri tíma fyrir trússarann sem varð olíulaus á þjóðveginum. Snorri tók að sér að ná í olíu og í hæversku sinni spurði trússarinn, þegar hann kom með olíuna, hvort hann hefði ekki langað í bað eins og hina strákana. „Sýnist þér ég vera fiskur?“ var svarið. Eftir bað á Mývatni gekk ferðin í raun eins og í sögu, allir voða kátir þó að sumir segðust hafa verið þurrir í hálsinum af stressi yfir að detta þá og þegar. Hjólið hans Rikka var skilið eftir á Akureyri vegna þráláts olíuljóss í mælaborði – en ljósið reyndist bara vera mótmælaljós enda búið að fá nóg af sundkennslu. Biggi fékk nóg á Húsavík og ók í ofboði til Reykjavíkur og Valli var í vandræðum með loftleka í framhjóli á leið í Laugafell. En svo hætti lekinn bara uppúr þurru um nóttina á Hveravöllum. Í blárestina gaf afturhjólalega sig í einu hjólanna 10 mínútum áður en komið var til Gullfoss. Að öllu öðru leyti var þessi ferð tíðindalaus nema að trússarinn er enn með hálsríg eftir að hafa hrist hausinn yfir þessum ferðamáta félaga sinna í fjóra daga.
previous pagepages 1 2 3 4 ALL next page
Við gistiheimilið Sigtún
Við gistiheimilið Sigtún
Húsavíkurhöfn
Húsavíkurhöfn
Rikki og Bolli
Rikki og Bolli
Á Gamla bauk
Á Gamla bauk
Sunnudagsmorgunn
Sunnudagsmorgunn
Viðhaldspása
Viðhaldspása
Þetta hjól fékk far í bæinn hjá mér.
Þetta hjól fékk far í bæinn hjá mér.
Á leið inn Eyjafjörð
Á leið inn Eyjafjörð
Eyjafjarðará
Eyjafjarðará
Á leið til Laugafells
Á leið til Laugafells
Á háheiðinni
Á háheiðinni
Styttist í Laugafell
Styttist í Laugafell
Í Laugafelli
Í Laugafelli
Trússinn
Trússinn
Valli lemur til felgu í  Laugafelli
Valli lemur til felgu í Laugafelli
Hnjúkskvísl neðan Laugafells Leiðin liggur Vesturdals
Hnjúkskvísl neðan Laugafells
Leiðin liggur Vesturdals
Trússað yfir Hnjúkskvísl
Trússað yfir Hnjúkskvísl
Reyðarvatn á Eyvindarstaðaheiði
Reyðarvatn á Eyvindarstaðaheiði
Pása áður en haldið er ofan í Skagafjörð
Pása áður en haldið er ofan í Skagafjörð
Vesturdalur
Vesturdalur
Hofsá efst í Vesturdal
Hofsá efst í Vesturdal
Túnin að Giljum
Túnin að Giljum
Kirkjustaðurinn Mælifell
Kirkjustaðurinn Mælifell
Steinsstaðir
Steinsstaðir
Við afleggjarann ofan Steinsstaða, þar sem beygt er í átt til Mælifellsdals
Við afleggjarann ofan Steinsstaða,
þar sem beygt er í átt til Mælifellsdals
Mælifellsdalur
Mælifellsdalur
Á leið til Blöndulóns
Á leið til Blöndulóns
previous pagepages 1 2 3 4 ALL next page