photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Hágöngur - Vonarskarð - Dreki - Reykjaheiði - Laugafell - Mælifellsdalur - Hveravellir - sep. 2009 tree view | thumbnails | slideshow

Hágöngur - Vonarskarð - Dreki - Reykjaheiði - Laugafell - Mælifellsdalur - Hveravellir - sep. 2009

Á dögunum hljóp með þeim hætti á snærið hjá mér að Sigurlaug hans Skúla sá sér ekki fært vegna anna að trússa þá mótorhjólafélaga norður um hálendið í ferð sem fara átti þá og þegar. Ég gaf mig að sjálfsögðu fram strax enda leiðin spennandi sem fara átti og á henni kaflar sem ég hafði ekki komið á áður. Ég var ráðinn á staðnum af yfirvaldinu til að fylgja þeim félögum eftir á þessari rúmlega 1.200 km leið, sem fara átti á fjórum dagleiðum. Fyrir dyrum stóð n.t. ferð níu roskinna og ráðsettra manna á sk ferðamótorhjólum (BMW, KTM og Kawasaki) frá Landsveit til Hrauneyja, þaðan sem halda skyldi með Sprengisandsleið til vegamóta, þar sem beygt er inná afleggjara til Hágöngulóns. Meðfram lóninu skyldi ekið á slóða til og um Vonarskarð, Gæsavötn, Urðarháls, flæðurnar svokölluðu og allt til Dreka við Öskju. Daginn eftir skyldi farið í Kverkfjöll, þaðan til Kröflu, Mývatns og þaðan í gistingu á Húsavík eftir að hafa ekið á milljón slóðum á Reykjaheiði. Daginn efir skyldi ekið til Akureyrar, m.a. til matvæla- og eldsneytiskaupa. Þaðan yrði ekið upp Eyjafjörð til Laugafells á Kjalvegi, þaðan sem stefnan yrði tekin niður Vesturdal til Skagafjarðar, en beygt inn á leið um Mælifellsdal skömmu áður en komið er að Steinsstöðum í Lýtingsstaðahreppi. Síðan lægi leið yfir Blöndustíflu inná Kjalveg og svo skyldi þrusa til Hveravalla. Leppistungur voru á listanum á leið til Reykjavíkur. Mótorhjólamenn voru eftirtaldir: Skúli Skúlason á BMW 800, Eyþór Örlygsson á BMW 650, Nonni á BMW 650, Ríkarður Már Pétursson á BMW 1200, Valbjörn Jónsson á Kawasaki 650, Birgir Bjarnason á KTM 640, Snorri Gíslason á KTM 990, Karl Geir Arason á BMW 650 og Hlynur Sigursveinsson á KTM 990. Bolli var trússari á Nissan Patrol. Í stuttu máli gekk leiðin upp í meginatriðum eins og hún hafði verið sett upp. Að vísu meiddi Birgir sig skömmu eftir að Flæðunum sleppti svo að hann varð að láta gott heita að kvöldi fyrsta dags. Daginn eftir elti Murphys lögmálið okkur á röndum frá Dreka til Möðrudalsöræfa, sem eru 97 km. Menn drekktu hjólunum í ánum, héldu að þau væru biluð og settu á kerruna og svo framvegis. Því var ákveðið fljótlega að sleppa bæði Kverkfjöllum og Kröflu og einbeita sér að því að komast til næstu mannabyggða, Mývatns. Það tók 8 klukkustundir og raunar meiri tíma fyrir trússarann sem varð olíulaus á þjóðveginum. Snorri tók að sér að ná í olíu og í hæversku sinni spurði trússarinn, þegar hann kom með olíuna, hvort hann hefði ekki langað í bað eins og hina strákana. „Sýnist þér ég vera fiskur?“ var svarið. Eftir bað á Mývatni gekk ferðin í raun eins og í sögu, allir voða kátir þó að sumir segðust hafa verið þurrir í hálsinum af stressi yfir að detta þá og þegar. Hjólið hans Rikka var skilið eftir á Akureyri vegna þráláts olíuljóss í mælaborði – en ljósið reyndist bara vera mótmælaljós enda búið að fá nóg af sundkennslu. Biggi fékk nóg á Húsavík og ók í ofboði til Reykjavíkur og Valli var í vandræðum með loftleka í framhjóli á leið í Laugafell. En svo hætti lekinn bara uppúr þurru um nóttina á Hveravöllum. Í blárestina gaf afturhjólalega sig í einu hjólanna 10 mínútum áður en komið var til Gullfoss. Að öllu öðru leyti var þessi ferð tíðindalaus nema að trússarinn er enn með hálsríg eftir að hafa hrist hausinn yfir þessum ferðamáta félaga sinna í fjóra daga.
previous pagepages 1 2 3 4 ALL next page
Á svörtum söndum
Á svörtum söndum
Dyngjuháls. Gæsavötn að baki  Trölladyngja í fjarska
Dyngjuháls. Gæsavötn að baki
Trölladyngja í fjarska
g1/12/32712/2/117133460.Onzrl4G5.jpg
Stórgrýti Urðarháls
Stórgrýti Urðarháls
Skúli við gíginn á Urðarhálsi
Skúli við gíginn á Urðarhálsi
Flæður undir Dyngjujökli framundan
Flæður undir Dyngjujökli framundan
Flæðurnar
Flæðurnar
Áning undir Dyngjujökli
Áning undir Dyngjujökli
Á Flæðunum
Á Flæðunum
Skúli
Skúli
Rikki
Rikki
Snorri G. Gíslason.Vaðalda í bakgrunni
Snorri G. Gíslason.
Vaðalda í bakgrunni
Dreki
Dreki
Rikki baka nanbrauð, sem einhver kallaði nanóbrauð
Rikki baka nanbrauð,
sem einhver kallaði nanóbrauð
Hugað að morgundeginum
Hugað að morgundeginum
Herðubreið
Herðubreið
Lindaá við Herðubreiðarlindir. Þorsteinsskáli
Lindaá við Herðubreiðarlindir.
Þorsteinsskáli
Grafarlandsá Í ánni fór keðjan af
Grafarlandsá
Í ánni fór keðjan af
g1/12/32712/2/117399684.nhM3Xxe1.jpg Skúli vindur sokkana í þriðja sinn á klukkustund
Skúli vindur sokkana í
þriðja sinn á klukkustund
Olíulaus á Mývatnsöræfum
Olíulaus á Mývatnsöræfum
Varða á Mývatnsöræfum
Varða á Mývatnsöræfum
Á Reykjaheiði að loknu baði á Mývatni
Á Reykjaheiði að loknu baði á Mývatni
Á Reykjaheiði
Á Reykjaheiði
Í nybóttu hrauninu á Reykjaheiði
Í nybóttu hrauninu á Reykjaheiði
Á Þeistareykjaleið
Á Þeistareykjaleið
Húsavíkurfjall
Húsavíkurfjall
previous pagepages 1 2 3 4 ALL next page